Umhverfisnefnd - 60
- Kl. 16:15 - 17:45
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 60
Nefndarmenn
- Sigmar Arnarssonformaður
- Hulda Stefánsdóttir
- Kolbrún Sigurgeirsdóttir
- Petrea Ósk Sigurðardóttir
- Valdís Anna Jónsdóttir
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Jón Birgir Gunnlaugssonfundarritari
Aðalskipulag Eyjafjarðar - efnistökusvæði - kynning og auglýsing
Málsnúmer 2011010075Lagt fram til kynningar bréf dags. 18. apríl 2011 frá Jónasi Vigfússyni þar sem hann f.h. Eyjafjarðarsveitar tilkynnir um viðbrögð sveitarstjórnarinnar við umsögn umhverfisnefndar um breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar vegna efnistökusvæða.

Óshólmanefnd - fuglatalning
Málsnúmer 2009110125Lögð fram skýrsla frá Náttúrufræðistofnun Íslands um fuglalíf í óshólmum Eyjafjarðarár sem Sverrir Thorstensen og Ævar Petersen unnu fyrir Akureyrarkaupstað, Eyjafjarðarsveit og Flugstoðir.

Umhverfisnefnd þakkar kynningu á skýrslunni.

Staðardagskrá 21 - endurskoðun 2011
Málsnúmer 2011050056Farið var yfir vinnu við Staðardagskrá 21 í sveitarfélaginu.

Umhverfisnefnd felur formanni og starfsmönnum áframhaldandi vinnu við Staðardagskrána.

Svifryksmælar - fyrirspurn
Málsnúmer 2011050057Eftirfarandi fyrirspurn barst frá Andreu Sigrúnu Hjálmsdóttur bæjarfulltrúa V-lista.\nFram kom í stefnuræðu formanns umhverfisnefndar sem flutt var á fundi bæjarstjórnar þann 3. maí 2011 að svifryksmælar í bænum hafi verið meira og minna bilaðir í allan vetur. Þrátt fyrir það hafa tölur um svifryk verið birtar á heimasíðu bæjarins í vetur. Vinstri hreyfingin grænt framboð óskar því eftir upplýsingum um hvaðan þær tölur sem birtust á meðan mælarnir voru bilaðir komu og hvers vegna íbúum bæjarins var ekki kynnt að mælarnir væru bilaðir.

Umhverfisnefnd harmar að mannleg mistök hafi leitt til þess að rangar upplýsingar hafi birst á svifryksmælum á heimasíðu Akureyrarbæjar og ítrekar að slíkt skuli ekki gerast aftur. Umhverfisnefnd bendir einnig á að mikilvægt sé að birta réttar upplýsingar um svifryksmengun á vef Akureyrarbæjar þar sem margir treysti á að þær upplýsingar séu réttar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>

Mælirinn lá niðri og var bilaður í 52 daga fyrir áramót og 91 dag eftir áramót. Þær tölur sem birtust á heimasíðu bæjarins komu frá þeim stöðum þar sem hann var staðsettur á hverjum tíma m.a Hafnarfirði, þar sem hann var í viðgerð og samkeyrður við annan mæli til afstillingar. Samtals birtust tölugildi frá Hafnafirði í 24 daga.<o:p></o:p>

Stangaveiðifélag Akureyrar - ósk um viðræður vegna Glerár
Málsnúmer 2011050093Tekið fyrir erindi dags. 10. maí 2011 frá Stangaveiðifélagi Akureyrar þar sem óskað er eftir viðræðum við Akureyrarbæ um að SVAK fari með umsýslu og ábyrgð á Glerá.

Umhverfisnefnd tekur vel í erindið og vísar því til bæjarráðs.