Velferðarráð - 1262
- Kl. 14:00 - 18:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1262
Nefndarmenn
- Róbert Freyr Jónssonformaður
- Halldóra Kristín Hauksdóttir
- Svava Þórhildur Hjaltalín
- Valur Sæmundsson
- Guðrún Karitas Garðarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karólína Gunnarsdóttirforstöðumaður þjónustudeildar fjölskyldusviðs
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri
- Jón Hrói Finnssonsviðsstjóri búsetusviðs
- Steinunn Benna Hreiðarsdóttirfundarritari
Fjárhagsáætlun 2018 - 2021
Málsnúmer 2017060040Fjárhagsáætlun leiguíbúða Akureyrar lögð fram til kynningar.
Karólína Gunnarsdóttir forstöðumaður skrifstofu fjölskyldusviðs og Snjólaug Jóhannesdóttir félagsráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.Velferðarráð þakkar kynningu.
Fjárhagserindi 2017 - áfrýjanir
Málsnúmer 2017010078Snjólaug Jóhannesdóttir félagsráðgjafi kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.
Fjárhagserindi og afgreiðsla þeirra færð í trúnaðarbók velferðarráðs.
Sérstakur húsnæðisstuðningur 2017
Málsnúmer 2017100005Lagt fram til kynningar yfirlit yfir sérstakan húsnæðisstuðning á árinu 2017.
Karólína Gunnarsdóttir forstöðumaður skrifstofu fjölskyldudeildar og Lúðvík Freyr Sæmundsson rekstrarstjóri Öldrunarheimila Akureyrar sátu fundinn undir þessum lið.Velferðarráð þakkar kynningu.
Velferðarráð - rekstraryfirlit 2017
Málsnúmer 2017010088Lagt fram til kynningar yfirlit yfir 8 mánaða rekstur allra málaflokka.
Lúðvík Freyr Sæmundsson rekstrarstjóri Öldrunarheimila Akureyrar sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð óskar eftir kynningu á málefnum barnaverndar með hliðsjón af auknum vanda vegna vímuefnaneyslu.
Velferðarráð þakkar kynningu.ÖA - samfélagshjúkrun (Buurtzorg þróunarverkefni)
Málsnúmer 2016060153Lögð fram samantekt um þróunarverkefnið "samfélagshjúkrun" - skýrsla II, en fyrri hluti var lagður fram á fundi 30. ágúst 2017.
Á fundinn mættu Birna Björnsdóttir verkefnastjóri, Friðný Sigurðardóttir forstöðumaður stoðþjónustu Öldrunarheimila Akureyrar og Ingi Þór Ágústsson forstöðumaður Austurhlíðar og kynntu helstu niðurstöður og ályktanir sem af verkefninu má draga. Framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar, Halldór S. Guðmundsson, hefur lagt inn umsókn um styrk til Framkvæmdasjóðs aldraðra til að halda áfram með þróun og innleiðingu verkefnisins.
Lúðvík Freyr Sæmundsson rekstrarstjóri Öldrunarheimila Akureyrar sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð þakkar fyrir kynninguna.
55 ára afmæli Hlíðar og 5 ára afmæli Lögmannshlíðar
Málsnúmer 2017100009Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar greindi frá afmælishátíðum sem haldnar voru í Hlíð og Lögmannshlíð í tilefni af að heimilin áttu 55 ára og 5 ára starfsafmæli 29. ágúst og 26. september sl.
Lúðvík Freyr Sæmundsson rekstrarstjóri Öldrunarheimila Akureyrar sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð þakkar frásögnina.
Þjónustuhópur aldraðra
Málsnúmer 2017030620Lögð fram til kynningar fundargerð 1. fundar Þjónustuhóps aldraðra sem haldin var 22. ágúst 2017.
Lúðvík Freyr Sæmundsson rekstrarstjóri Öldrunarheimila Akureyrar sat fundinn undir þessu lið.Velferðarráð þakkar kynninguna.
Fyrirspurn vegna RUG stuðla
Málsnúmer 2017070100Lögð fram til kynningar fyrirspurn frá Sjúkratryggingum Íslands vegna breytinga á RUG hjúkrunarþyngdarstuðlum hjá Öldrunarheimilum Akureyrar.
Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar lagði fram svarbréf vegna fyrirspurnarinnar og kynnti yfirlit um þróun RUG stuðla hjá ÖA og nokkrum öðrum hjúkrunarheimilum.
Lúðvík Freyr Sæmundsson rekstrarstjóri Öldrunarheimila Akureyrar sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð þakkar kynningu.
Öldrunarþjónusta - biðlistar 2016 og 2017
Málsnúmer 2016020149Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar lagði fram yfirlit um fjölda einstaklinga sem metnir eru af færni- og heilsumatsnefnd í þörf fyrir dvalar- og hjúkrunarrými þann 1. október 2017 ásamt upplýsingum um fjölda notenda í dagþjálfun.
Velferðarráð óskar eftir að unnin verði samantekt um hvernig eða hvort einstaklingar á biðlista eru að nýta aðra öldrunarþjónustu. Jafnframt óskar velferðarráð eftir að fá upplýsingar um fjölda notenda í heimahjúkrun á vegum HSN og um heimaþjónustu og heimsendan mat á vegum búsetusviðs.
Velferðarstefna 2014 - 2018
Málsnúmer 2015010191Unnið áfram að velferðarstefnu.