Stjórn Akureyrarstofu - 218
- Kl. 16:15 - 18:22
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 218
Nefndarmenn
- Unnar Jónssonformaður
- Sigfús Arnar Karlsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Eva Dögg Fjölnisdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þórgnýr Dýrfjörðframkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Menningarfélag Akureyrar - MAK
Málsnúmer 2016030110Þuríður Helga Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri félagsins og Sigurður Kristinsson komu á fundinn til að fara yfir stöðu rekstrar og verkefna í kjölfar aðalfundar félagsins.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Sigurði og Þuríði fyrir greinargóðar upplýsingar og gagnlegar umræður.
Ferðamálastefna
Málsnúmer 2014110220Áfram haldið vinnu við ferðamálastefnuna.
Umsókn um styrk til kaupa á tímatökubúnaði
Málsnúmer 2016070084Styrkbeiðni frá Vilberg Helgasyni, f.h. Hjólreiðafélags Akureyrar, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 600.000 til kaupa á sjálfvirkum tímatökubúnaði sem myndi gagnast ýmsum viðburðum á Akureyri.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 600.000 til verkefnisins.
Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030
Málsnúmer 2015110092Skipulagsnefnd samþykkti á fundi 5. október sl. að senda tillögu að Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 til umsagnar innan bæjarkerfisins, þ.e. deilda, nefnda og ráða.
Lagt fram til kynningar.Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2016
Málsnúmer 2016110027Í vikunni bárust þau tíðindi að Akureyringurinn Arnar Már Arngrímsson hefur hlotið barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir skáldsögu sína Sölvasögu unglings. Þetta er í fjórða sinn sem verðlaun eru veitt í þessum flokki en þau koma nú í fyrsta skipti í hlut Íslendings.
Stjórn Akureyrarstofu óskar Arnari Má hjartanlega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu og óskar honum áframhaldandi velfarnaðar á rithöfundarbrautinni.