Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 265
- Kl. 08:15 - 10:55
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 265
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirframkvæmdastjóri
- Steindór Ívar Ívarssonverkefnastjóri viðhalds
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirfundarritari
Ábyrgðarmörk og siðareglur kjörinna fulltrúa og nefndarmanna
Málsnúmer 2015090010Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður mætti á fundinn og kynnti reglur um ábyrgðarmörk og siðareglur kjörinna fulltrúa.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar þakkar kynninguna.
Stöðuskýrslur FA 2015
Málsnúmer 2015040077Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla 6 fyrir stjórn FA dagsett 28. ágúst 2015.
Sundlaug Akureyrar - endurnýjun rennibrauta og sundlaugarsvæðis
Málsnúmer 2014020207Lagt fram til kynningar minnisblað dagsett 24. júní 2015 um áætlaðan kostnað við fyrirhugaðar framkvæmdir við sundlaugarsvæðið og framkvæmdaáætlun fyrir verkið. Einnig tilnefning nefndarmanns í verkefnislið vegna framkvæmdanna.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að farið verði í endurbætur á og við barnapottinn samkvæmt framlögðum gögnum.
Stjórnin skipar Höllu Björk Reynisdóttur L-lista í verkefnisliðið vegna framkvæmdanna við Sundlaug Akureyrar.Fjárhagsáætlun 2016 - Fasteignir Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2015090007Lögð fram húsaleiguáætlun FA fyrir árið 2016.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir framlagða húsaleiguáætlun.
Skautahöllin - endurnýjun á svelli
Málsnúmer 2015020134Tilnefning nefndarmanns í verkefnislið vegna framkvæmdanna.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar skipar Þorstein Hlyn Jónsson Æ-lista í verkefnisliðið.
Hlíð - endurbætur á Víði- og Furuhlíð
Málsnúmer 2014110024Tilnefning nefndarmanns í verkefnislið vegna framkvæmdanna.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar skipar Höllu Björk Reynisdóttur L-lista í verkefnisliðið.
Samgöngumiðstöð - Fasteignir Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2015090009Tilnefning nefndarmanns í verkefnislið fyrir nýja samgöngumiðstöð.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar skipar Hermann Inga Arason V-lista í verkefnisliðið.
Hjúkrunarheimili Vestursíðu 9 - skilamat
Málsnúmer 2011080097Lagt fram til kynningar skilamat fyrir framkvæmdina.
Verkfundargerðir FA 2015
Málsnúmer 2015010093Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Naustaskóli kennaraálma: 9.- 11. verkfundur dagsettir 3. og 17. júlí og 18. ágúst 2015.
Naustaskóli íþróttahús: 5. og 6. verkfundur dagsettir 3. júlí og 18. ágúst 2015.
Skautahöll endurnýjun á svelli: 10. fundur verkefnisliðs dagsettur 26. ágúst 2015.
Þ99 kjallari: 4.- 6. verkfundur dagsettir 29. júní, 13. júlí og 18. ágúst 2015.