Fræðslu- og lýðheilsuráð - 24
- Kl. 13:00 - 15:00
- Félagsheimili Þórs, Hamri við Skarðshlíð
- Fundur nr. 24
Nefndarmenn
- Heimir Örn Árnasonformaður
- Hulda Elma Eysteinsdóttir
- Bjarney Sigurðardóttir
- Óskar Ingi Sigurðsson
- Tinna Guðmundsdóttir
- Ásrún Ýr Gestsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Ísak Már Jóhannessonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Bjarki Ármann Oddssonforstöðumaður skrifstofu ritaði fundargerð
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
- Ellert Örn Erlingssonforstöðumaður íþróttamála
Fræðslu- og lýðheilsuráð - heimsókn í íþróttamannvirki
Málsnúmer 2022110690Reimar Helgason, Ragnar Níels Steinsson, Fjalar Úlfarsson og Nói Björnsson frá Íþróttafélaginu Þór tóku á móti fræðslu- og lýðheilsuráði og sögðu frá starfsemi félagsins, framtíðaráformum og sýndu ráðinu mannvirki þess.
Áheyrnarfulltrúi: Thelma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar Reimari, Ragnari, Fjalari og Nóa kærlega fyrir kynninguna.
Íþróttafélaginn - stuðningur við íþróttaiðkun barna með fjölþættan vanda
Málsnúmer 2022111455Halla Birgisdóttir forstöðumaður tómstundamála og Salka Sigurðardóttir verkefnastjóri félagslegrar liðveislu kynntu ítarlegri verkáætlun að tilraunarverkefninu Íþróttafélaginn - stuðningur við íþróttaiðkun barna með fjölþættan vanda.
Linda Guðmundsdóttir íþróttafulltrúi Þórs sat fundinn undir þessum lið.
Áheyrnarfulltrúi: Thelma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð fagnar verkefninu og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
Bílaklúbbur Akureyrar - umsókn um notkun á fjölnotahúsinu Boganum
Málsnúmer 2013040200Erindi dagsett 29. janúar 2023 frá Einari Gunnlaugssyni formanni Bílaklúbbs Akureyrar þar sem óskað er eftir afnotum af Boganum fyrir árlega bílasýningu félagsins 17. júní nk.
Reimar Helgason framkvæmdastjóri Þórs sat fundinn undir umræðum í þessum lið.
Áheyrnarfulltrúi: Thelma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir erindið og heimilar notkun á Boganum undir bílasýningu Bílaklúbbs Akureyrar 2023.
Ungmennafélag Akureyrar - stuðningur við frjálsíþróttaviðburði
Málsnúmer 2020060206Erindi dagsett 6. janúar 2023 frá Arnari Elíassyni formanni UFA þar sem er óskað er eftir samkomulagi um styrkveitingu til þriggja ára vegna árlegra frjálsíþróttaviðburða á vegum félagsins á Akureyri.
Áheyrnarfulltrúi: Thelma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir drög að samningi fyrir sitt leyti og vísar málinu áfram til bæjarráðs.
Knattspyrnufélag Akureyrar - Öldungur 2023 - styrkbeiðni
Málsnúmer 2023011078Erindi frá Ástu Heiðrúnu Jónsdóttur f.h. Blakdeildar KA dagsett 19. janúar 2023 þar sem óskað er eftir aðgengi að íþróttamannvirkjum Akureyrarbæjar endurgjaldslaust eða fyrir lágmarkskostnað til að halda Öldungablakmótið 2023 á Akureyri.
Áheyrnarfulltrúi: Thelma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir erindið og felur forstöðumanni íþróttamála að vinna málið áfram.
Styrkir til íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafélaga (yfirlit)
Málsnúmer 2023011426Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála lagði fram til kynningar yfirlit yfir styrki til íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafélaga á árinu 2022.
Áheyrnarfulltrúi: Thelma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Rósenborg - framkvæmdir vegna FélAk
Málsnúmer 2023011504Lagt fram minnisblað vegna framkvæmda við Rósenborg vegna flutnings starfsstöðvar FélAk.
Áheyrnarfulltrúi: Thelma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu og greiðslu á lausafjárleigu vegna framkvæmdanna og vísar afgreiðslunni til umhverfis- og mannvirkjaráðs.