Bæjarstjórn - 3490
- Kl. 16:12 - 16:25
- Hamrar í Hofi
- Fundur nr. 3490
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirforseti bæjarstjórnar
- Andri Teitsson
- Hlynur Jóhannsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Gunnar Gíslason
- Heimir Haraldsson
- Hilda Jana Gísladóttir
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Þórhallur Jónsson
Starfsmenn
- Ásthildur Sturludóttirbæjarstjóri
- Kristín Sóley Sigursveinsdóttirfundarritari
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - skipulagsráð
Málsnúmer 2018060500Lögð fram tillaga S-lista um breytingar á skipan fulltrúa í skipulagsráði:
Sindri Kristjánsson verði aðalfulltrúi og varaformaður í stað Orra Kristjánssonar. Orri Kristjánsson verði varafulltrúi í stað Ólínu Freysteinsdóttur.Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.
Kosning nefnda 2018-2022 - tilnefning í skólanefnd MA
Málsnúmer 2018060032Tilnefning eins aðalfulltrúa og eins varafulltrúa í skólanefnd Menntaskólans á Akureyri.
Bæjarstjórn tilnefnir Helga Þorbjörn Svavarsson og Ólöfu Ingu Andrésdóttur.
Lögreglusamþykkt fyrir Akureyrarbæ - endurskoðun - síðari umræða
Málsnúmer 2017020113Endurskoðuð lögreglusamþykkt fyrir Akureyrarbæ tekin til seinni umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarráð fjallaði um málið á fundi sínum 4. febrúar sl. og fyrri umræða í bæjarstjórn fór fram 16. febrúar sl.
Halla Björk Reynisdóttir kynnti málið.
Í umræðum tóku til máls Þórhallur Jónsson og Sóley Björk Stefánsdóttir.Meirihluti bæjarstjórnar samþykkir framlagða lögreglusamþykkt fyrir Akureyrarbæ.
Þórhallur Jónsson D-lista greiðir atkvæði á móti.Miðbær - uppfærsla deiliskipulags
Málsnúmer 2017010274Liður 2 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 24. febrúar 2021:
Lögð fram endurskoðuð tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Akureyrar. Hafa verið gerðar ýmsar breytingar á tillögunni til að koma til móts við athugasemdir og umsagnir sem bárust við drög að tillögu sem kynnt var í desember sl. auk þess sem niðurstaða vindgreiningar hefur haft áhrif á útfærslu byggingarreita, gróðurskipulags og skilmála.
Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Akureyrar verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Þórhallur Jónsson kynnti tillögu skipulagsráðs.
Í umræðum tóku til máls Hilda Jana Gísladóttir og Andri Teitsson.Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Akureyrar verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
- Akureyri-Midbaer_Dsk-breyting-Tillaga_Glerárgata-Hofsbót-Skipagata_A2-Skýringaruppdráttur_2021-02-19.pdf
- Akureyri-Midbaer_Dsk-breyting-Tillaga_Glerárgata-Hofsbót-Skipagata_A2-1000-Skipulagsuppdráttur-2021-02-19.pdf
- Akureyri-Midbaer_Dsk-breyting-Tillaga_Glerárgata-Hofsbót-Skipagata_Greinargerd-2021-02-19.pdf
- 370-003-MIN-001-V02 Miðbær Akureyrar vindgreining mótvægisaðgerðir.pdf
- 370-033-SKY-001-V01 Miðbær Akureyrar vindgreining - Vindgreining á deiliskipulagi.pdf
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 2021010534Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar.