Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 758
- Kl. 13:00 - 13:30
- Fundarherbergi skipulagssviðs
- Fundur nr. 758
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonbyggingarfulltrúi
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Kjarnagata 25 - umsókn um byggingarleyfi fyrir farsímamastri
Málsnúmer 2020010011Erindi dagsett 19. desember 2019 þar sem Hjörtur Líndal fyrir hönd Nova hf., kt. 531205-0810, sækir um byggingarleyfi fyrir uppsetningu farsímamasturs við hús nr. 25 við Kjarnagötu. Meðfylgjandi er gátlisti og samþykki lóðareiganda.
Innkomin umsögn Isavia 6. febrúar 2020.Byggingarfulltrúi samþykkir erindið með fyrirvara um að sett verði upp hindranalýsing efst á mastrið.
Kaupvangsstræti 16 - umsókn um byggingarleyfi fyrir gistiskálum á 3. hæð
Málsnúmer 2020010570Erindi dagsett 27. janúar 2020 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Fasteigna ehf., kt. 581088-1409, sækir um byggingarleyfi til að breyta 3. hæð Kaupvangsstrætis 16 í aðstöðu fyrir gistiskála. Meðfylgjandi er samþykki lóðarhafa og teikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Glerárgata 36 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2020010631Erindi dagsett 30. janúar 2020 þar sem Guðmundur Oddur Víðisson fyrir hönd Festi fasteigna ehf., kt. 581113-1100, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 36 við Glerárgötu. Fyrirhugað er að koma fyrir þjónustuverslun N1. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Guðmund Odd Víðisson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Kristjánshagi 3 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2020010316Erindi dagsett 15. janúar 2020 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson fyrir hönd BB bygginga ehf., kt. 550501-2280, sækir um byggingarleyfi fyrir sex íbúða raðhúsi á lóð nr. 3 við Kristjánshaga.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.