Velferðarráð - 1338
- Kl. 14:00 - 15:23
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1338
Nefndarmenn
- Heimir Haraldssonformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Hermann Ingi Arason
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Sigrún Elva Briemáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karólína Gunnarsdóttirþjónustustjóri velferðarsviðs
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri velferðarsviðs
- Kristín Birna Kristjánsdóttirfundarritari
Fjárhagserindi 2021 - áfrýjanir
Málsnúmer 2021010234Anna Hildur Guðmundsdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafi og Gyða Björk Ólafsdóttir félagsráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið og kynntu áfrýjun í fjárhagsaðstoð.
Fjárhagserindi og afgreiðsla þeirra eru færð í trúnaðarbók velferðarráðs.
Fjárhagsaðstoð 2021
Málsnúmer 2021031923Lagt fram til kynningar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð á árinu 2021.
Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sat fundinn undir þessum lið.Stuðningur við aukið félagsstarf fullorðinna 2021 vegna COVID-19
Málsnúmer 2021032007Félagsmálaráðuneytið auglýsti eftir umsóknum vegna sérstakra viðbótarverkefna í félagsstarfi fullorðinna fyrir árið 2021. Akureyrarbær sendi inn umsókn um tvö verkefni.
Félagsmálaráðuneytið hefur samþykkt innsenda umsókn. Við úthlutun fjármagns er horft til fjölda 67 ára og eldri í sveitarfélaginu.
Alls verða lagðar kr. 4.532.200 inn á reikning sveitarfélagsins á næstu dögum vegna þessa verkefnis.Aflið - samstarfssamningar 2021
Málsnúmer 2021041646Lögð fram drög að samstarfssamningi Akureyrarbæjar og Aflsins.
Velferðarráð samþykkir að gerður verði samstarfssamningur til tveggja ára.
Stöðuskýrslur uppbyggingarteymis
Málsnúmer 2021041647Lagðar fram til kynningar stöðuskýrslur uppbyggingarteymis í félagsmálaráðuneyti.
Ofbeldi gegn öldruðum á Íslandi
Málsnúmer 2021041491Lögð fram til kynningar skýrsla Ríkislögreglustjóra um ofbeldi gegn öldruðum.
Reglur Akureyrarbæjar um úthlutun sérstakra íþrótta- og tómstundastyrkja fyrir börn á tekjulágum heimilum skólaárið 2020-2021
Málsnúmer 2020100143Lögð fram drög að breytingu á reglum Akureyrarbæjar um sérstakan styrk til íþrótta- og tómstundaiðkunar barna.
Halldóra K. Hauksdóttir lögfræðingur velferðarsviðs sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti og vísar málinu áfram til bæjarstjórnar.
Velferðarráð - umsókn í framkvæmdasjóð vegna kaupa á bíl
Málsnúmer 2021050120Lagt fram erindi frá Kolbeini Aðalsteinssyni forstöðumanni og Guðrúnu Sigurðardóttur sviðsstjóra dagsett 4. maí 2021 þar sem lagt er til að óskað verði eftir heimild til kaupa á bifreið fyrir barnavernd og heimaþjónustu.
Velferðarráð samþykkir kaupin fyrir sitt leyti og vísar málinu til umhverfis- og mannvirkjaráðs.