Umhverfisnefnd - 98
- Kl. 14:00 - 16:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 98
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Kristján Ingimar Ragnarsson
- Óskar Ingi Sigurðsson
- Ármann Sigurðsson
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Ólafur Kjartanssonáheyrnarfulltrúi
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Jón Birgir Gunnlaugssonforstöðumaður umhverfismála ritaði fundargerð
Glerárdalur - fólkvangur
Málsnúmer 2012080081Hildur Vésteinsdóttir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun mætti á fundinn og skýrði stöðu málsins.

Umhverfisnefnd þakkar Hildi fyrir veittar upplýsingar um friðunarferlið. Nefndin felur Hildi að gera þær breytingar á 5. grein sem rætt var um á fundinum og kynna á ný.

Óskar Ingi Sigurðsson B-lista mætti til fundar kl. 14:15.$line$
Úrgangsmál - staðan 2014
Málsnúmer 2014020035Umræður um stöðu málsins og næstu skref.

Umhverfisnefnd tilnefnir Dagbjörtu Elínu Pálsdóttur S-lista, Óskar Inga Sigurðsson B-lista og Áshildi Hlín Valtýsdóttur Æ-lista í starfshóp sem vinna á tillögur að fyrirkomulagi um sorpmál. Umhverfisnefnd óskar eftir að framkvæmdaráð tilnefni fulltrúa sinn í starfshópinn.

Fjárhagsáætlun 2015 - framkvæmdadeild
Málsnúmer 2014080067Vinna við fjárhagsáætlun málaflokkanna 108 og 111 fyrir árið 2015 kynnt.

Fjölnota innkaupapokar
Málsnúmer 2014110004Lagt fram til kynningar tilboð sem barst í tölvupósti dagsettum 6. nóvember 2014 frá gjafafélaginu Valfoss í fjölnota innkaupapoka.

Umhverfisnefnd leggur til að stefnt verði að átaki og vitundarvakningu í fjölnota burðarpokum í stað plastpoka.

Áshildur Hlín Valtýsdóttir Æ-lista vék af fundi kl. 15:50.$line$
Við stólum á þig - kaup á innkaupatöskum úr bamboo, til styrktar fólki í hjólastólum
Málsnúmer 2014090196Tekið fyrir erindi dagsett 15. september 2014 frá Pétri Sigurgunnarssyni þar sem hann býður Akureyrarbæ fjölnota innkaupapoka til styrktar verkefninu við stólum á þig.

Umhverfisnefnd getur ekki orðið við erindinu að sinni.