Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 288
- Kl. 15:00 - 16:46
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 288
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirframkvæmdastjóri
- Steindór Ívar Ívarssonverkefnastjóri viðhalds
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirfundarritari
Samgöngumiðstöð - Fasteignir Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2016050294Lögð fram tillaga að breytingu á nefndarmanni í verkefnisliði vegna byggingar samgöngumiðstöðvar.
Lagt er til að Eiríkur Jónsson S-lista taki sæti Höllu Bjarkar Reynisdóttur L-lista frá og með 1. janúar 2017.Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir breytingarnar og leggur til að sá formaður sem tekur við um áramót taki sæti núverandi formanns í þeim verkefnisliðum sem hann starfar í.
Stöðuskýrslur FA 2016
Málsnúmer 2016040037Lögð fram stöðuskýrsla 6 fyrir stjórn FA dagsett 8. desember 2016.
Fasteignir Akureyrarbæjar - starfsáætlun 2017
Málsnúmer 2016120041Lögð fram til kynningar starfsáætlun FA fyrir árið 2017.
Ófyrirséð viðhald - útboð 2016
Málsnúmer 2016120042Lagt fram til kynningar útboð á ófyrirséðu viðhaldi hjá FA fyrir árin 2017-2018.
Búnaðarkaup fyrir íþróttamannvirki - óskir íþróttaráðs um aðkomu Fasteigna Akureyrarbæjar að endurnýjun búnaðar
Málsnúmer 2016120043Lagt fram erindi dagsett 26. september 2016 frá íþróttaráði þar sem óskað er eftir fjárveitingu til búnaðarkaupa í íþróttamannvirki bæjarins samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir beiðnina og leggur til að búnaðarkaup fyrir Hlíðarfjall og Reiðhöllina verði bókfærð á árinu 2016 en búnaðarkaup fyrir Íþróttamiðstöð Giljaskóla og Sundlaug Glerárskóla verði bókfærð á árinu 2017.
Nökkvi siglingaklúbbur - framkvæmdir vegna uppbyggingarsamnings
Málsnúmer 2015030205Lögð fram drög að hönnunarsamningi við AVH ehf dagsett 24. nóvember 2016.
Meirihluti stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir samninginn.
Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista sat hjá við afgreiðsluna.Hof - beiðni um endunýjun á hljóðmixerum
Málsnúmer 2016120054Lögð fram beiðni um endurnýjun á hljóðmixerum í Hofi og staðfesting Akureyrarstofu dagsett 28. nóvember 2016. Áætlaður kostnaður við búnaðarkaupin er um 10 milljónir króna.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir búnaðarkaupin.
Önnur mál - stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar 2016
Málsnúmer 2016010047Á þessum síðasta fundi stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar vill hún þakka starfsfólki Fasteigna Akureyrarbæjar fyrir gott og farsælt samstarf.