Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 629
- Kl. 13:00 - 14:45
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 629
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonstaðgengill byggingarfulltrúa
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Skólastígur 4 - sundlaug - breytingar utanhúss
Málsnúmer 2015040158Erindi dagsett 28. apríl 2017 þar sem Ágúst Hafsteinsson fyrir hönd umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar sækir um breytingar utanhúss á sundlaugarmannvirkjum við Skólastíg 4. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.
Staðgengill byggingafulltrúa samþykkir erindið.
Ráðhústorg 5 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2016110013Erindi dagsett 2. nóvember 2016 þar sem Förth ehf. og Natten ehf. sækja um byggingarleyfi á húsi nr. 5 við Ráðhústorg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Einarsson. Innkomnar nýjar teikningar 22. mars 2017 og samþykki meðeigenda 28. apríl 2017.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið. Skila skal inn nýrri eignaskiptayfirlýsingu áður en byggingarleyfi verður gefið út.
Skipagata 2 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2017020105Erindi dagsett 17. febrúar 2017 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Förla ehf. sækir um leyfi fyrir breytingum á eignarhaldi í stigagangi á efri hæðum húss nr. 2 við Skipagötu, sem og byggingarleyfi fyrir breytingum á rýmum á 2. og 3. hæð sem breyta á í geymslur. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson. Innkomnar nýjar teikningar 22. mars og 25. apríl 2017 og samþykki meðeigenda 28. apríl 2017.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið. Skila skal inn nýrri eignaskiptayfirlýsingu áður en byggingarleyfi verður gefið út.
Fjölnisgata 1a - umsókn um breytingar á innra skipulagi
Málsnúmer 2017040134Erindi dagsett 24. apríl 2017 þar sem Birgir Þ. Jóhannsson fyrir hönd Gömlu húsanna ehf. sækir um leyfi fyrir breytingum á innra skipulagi í húsi nr. 1a við Fjölnisgötu. Setja á upp innkeyrsluhurðir og breyta gluggum. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Þröst Jóhannsson.
Staðgengill byggingarfulltrúa frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Brekkugata 7a - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum
Málsnúmer 2017040144Erindi dagsett 25. apríl 2017 þar sem Stefán Árnason fyrir hönd AJS fasteigna ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum inni og úti á húsi nr. 7a við Brekkugötu. Að utan skal lagfæra bárujárn, steinsteypu að neðan og glugga samkvæmt upprunalegu útliti. Að innan skal skal breyta 1. og 2. hæð í fjórar íbúðir. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Stefán Árnason.
Staðgengill byggingarfulltrúa frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Hringteigur 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum
Málsnúmer 2017040145Erindi dagsett 25. apríl 2017 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Ríkiseigna sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í húsi nr. 2 við Hringteig. Breytingar eru fyrirhugaðar á málmsmíðadeild. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Staðgengill byggingarfulltrúa frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Davíðshagi 12 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2017030603Erindi dagsett 30. mars 2017 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd B.E. Húsbygginga ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir húsi nr. 12 við Davíðshaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason. Innkomnar nýjar teikningar 26. apríl 2017 ásamt greinargerð vegna lítillar einstaklingsíbúðar.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.
Njarðarnes 8 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum
Málsnúmer 2017040156Erindi dagsett 26. apríl 2017 þar sem Ágúst Hafsteinsson fyrir hönd Car-X ehf. sækir um leyfi fyrir breytingum innanhúss á 1. hæð í húsi nr. 8 við Njarðarnes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.
Geirþrúðarhagi 8a - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2016110089Erindi dagsett 26. apríl 2017 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd Byggingarfélagsins Hyrnu ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 8a við Geirþrúðarhaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.
Geirþrúðarhagi 8b - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2017010236Erindi dagsett 26. apríl 2017 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd Byggingarfélagsins Hyrnu ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 8b við Geirþrúðarhaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.
Daggarlundur 9 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2017030187Erindi dagsett 17. mars 2017 þar sem Haraldur Árnason fyrir hönd Hildar Ingólfsdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir hús nr. 9 við Daggarlund. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 27. apríl 2017.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.
Frostagata 6a - umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu
Málsnúmer 2017040119Erindi dagsett 19. apríl 2017 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Vélsmiðju Steindórs ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús nr. 6a við Fjölnisgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Staðgengill byggingarfulltrúa frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.