Fræðsluráð - 38
- Kl. 13:30 - 16:00
- Fjarfundur
- Fundur nr. 38
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Þorlákur Axel Jónsson
- Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
- Rósa Njálsdóttir
- Þórhallur Harðarson
- Þuríður Sólveig Árnadóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Frímannssonsviðsstjóri fræðslusviðs
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
- Anna Bergrós Arnarsdóttirfulltrúi skólastjóra
- Hafdís Ólafsdóttirfulltrúi leikskólakennara
- Hanna Dóra Markúsdóttirfulltrúi grunnskólakennara
- Hildur Lilja Jónsdóttirfulltrúi ungmennaráðs
- Inda Björk Gunnarsdóttirfulltrúi leikskólastjóra
- Jóhann Gunnarssonfulltrúi foreldra grunnskólabarna
- Sindri S. Kristjánssonfulltrúi foreldra leikskólabarna
- Erna Rós Ingvarsdóttirfundarritari
Starfsáætlun fræðslusviðs 2021
Málsnúmer 2020050172Starfsáætlun fræðslusviðs fyrir árið 2021 tekin til afgreiðslu.
Fræðsluráð samþykkir starfsáætlunina samhljóða.
Fjárhagsáætlun fræðslusviðs 2021-2024
Málsnúmer 2020080903Fjárhagsáætlun fræðslusviðs 2021 lögð fram til kynningar.
Hildur Lilja Jónsdóttir fulltrúi ungmennaráðs vék af fundi kl. 14:50.
Gjaldskrá fræðslumála 2021
Málsnúmer 2020100079Gjaldskrá fræðslusviðs fyrir árið 2021 lögð fram til kynningar.
Rekstur fræðslumála 2020
Málsnúmer 2020010575Forstöðumaður rekstrar gerði grein fyrir stöðu fræðslumála á tímabilinu janúar til ágúst 2020.
Leikskólar - ársskýrslur mat og skorkort
Málsnúmer 2020090733Ársskýrsla, starfsáætlun og innra mat leikskóla Akureyrarbæjar lagt fram til staðfestingar.
Fræðsluráð samþykkir samhljóða.
Rósa Njálsdóttir vék af fundi kl. 15:40.
Staðfesting á skólasókn
Málsnúmer 2018100121Eitt af lögbundnum verkefnum fræðsluráðs sbr. 6. grein laga nr. 91/2008 um grunnskóla er ,,að sjá til þess að öll skólaskyld börn sem rétt eiga á skólavist í sveitarfélaginu njóti lögboðinnar fræðslu." Greinargerð um skólavist var lögð fram á fundinum.
Ytra mat á grunnskólum 2015-2020
Málsnúmer 2015050045Bréf dagsett 29. september 2020 frá Menntamálastofnun lagt fram til kynningar þar sem staðfest er að Lundarskóli hafi gert fullnægjandi grein fyrir viðbrögðum við ytra mati á skólastarfinu.
Heilsuefling - starfshópur
Málsnúmer 2020100021Fræðsluráð óskar eftir að settur verði á fót starfshópur sem hefur það verkefni að vinna að heilsueflingu í leik- og grunnskólum. Á fundinum var lagt fram erindisbréf starfshópsins.
Fræðsluráð staðfestir erindisbréfið og samþykkir að formaður hópsins verði Þuríður Árnadóttir.