Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 866
- Kl. 13:00 - 14:05
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 866
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Þórunn Vilmarsdóttirfundarritari
Íþróttavöllur dæluskúr - umsókn um niðurrif
Málsnúmer 2022050884Erindi dagsett 16. maí 2022 þar sem Jón Hermann Hermannsson fyrir hönd Norðurorku sækir um leyfi fyrir niðurrifi dæluskúrs fastanúmer 2224630.
Byggingarfulltrúi samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki byggingarinnar verði fjarlægð. Niðurrifið verður tilkynnt til Þjóðskrár Íslands eftir að úttekt byggingareftirlits hefur farið fram við verklok skv. 16. gr. mannvirkjalaga.
Dalsbraut 1 - umsókn um stöðuleyfi fyrir stúku
Málsnúmer 2022051611Erindi dagsett 27. maí 2022 þar sem Ragnar Bjarnason fyrir hönd Knattspyrnufélags Akureyrar sækir um byggingarleyfi fyrir bráðabirgðastúku sunnan við íþróttahús KA við Dalsbraut. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Bjarnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Margrétarhagi 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022042900Erindi dagsett 28. apríl 2022 þar sem Anna Margrét Hauksdóttir fyrir hönd BF bygginga sækir um byggingarleyfi fyrir raðhúsi á lóð nr. 1 við Margrétarhaga. Innkomnar nýjar teikningar 25. maí 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Hofsbót 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022042331Erindi dagsett 13. apríl 2022 þar sem Ásgeir Ásgeirsson fyrir hönd Boxhus ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 2 við Hofsbót. Innkomnar nýjar teikningar 31. maí 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.