Samfélags- og mannréttindaráð - 89
- Kl. 16:45 - 18:45
- Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 89
Nefndarmenn
- Hlín Bolladóttirformaður
- Heimir Haraldsson
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Guðlaug Kristinsdóttir
- Katrín Björg Ríkarðsdóttirfundarritari
Forvarnastefna
Málsnúmer 2010110033Ný forvarnastefna hefur nú verið samþykkt. Rætt var um útgáfu og dreifingu á stefnunni.

100 ár liðin frá kosningu fyrstu konu í bæjarstjórn Akureyrar
Málsnúmer 2011010047Til að minnast þess að 100 ár eru liðin frá því Kristín Eggertsdóttir tók fyrst kvenna sæti í bæjarstjórn mun samfélags- og mannréttindaráð standa fyrir útplöntun í Vilhelmínulundi við Hamra á kvenréttindadaginn 19. júní nk. kl. 13:00 og ásamt fleirum standa fyrir kvennasögugöngu kl. 10:30 þennan sama dag.

Félagsmiðstöðvar og Ungmenna-Hús
Málsnúmer 2010010090Lagðar fram til kynningar tölur um þátttöku í starfi Ungmenna-Hússins og félagsmiðstöðvanna veturinn 2010-2011.

Punkturinn og tómstundanámskeið barna
Málsnúmer 2010010092Lagðar fram til kynningar tölur um þátttöku í starfi handverksmiðstöðvarinnar Punktsins og þátttöku í tómstundanámskeiðum fyrir börn veturinn 2010-2011.

Sumarstarf í Rósenborg fyrir ungt fólk
Málsnúmer 2010010090Lagt fram til kynningar yfirlit yfir þau verkefni sem ungt fólk vinnur að í Rósenborg í sumar.

Anna Hildur Guðmundsdóttir mætti til fundar kl. 17:20.
Jafnréttisáætlanir stofnana
Málsnúmer 2008090024Í jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar er kveðið á um að allir vinnustaðir þar sem starfa fleiri en 25 starfsmenn skuli gera jafnréttisáætlanir í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. Jafnréttisáætlanir Brekkuskóla, Giljaskóla, Glerárskóla og Oddeyrarskóla voru lagðar fram til kynningar.

Samfélags- og mannréttindaráð fagnar þessum fjórum áætlunum og hvetur þær stofnanir sem enn hafa ekki lokið vinnu við gerð jafnréttisáætlana til að gera það sem fyrst.

Samfélags- og mannréttindaráð - fundaáætlun 2011
Málsnúmer 2011010036Lögð fram fundaáætlun til áramóta.