Skólanefnd - 13
- Kl. 13:30 - 13:30
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 13
Nefndarmenn
- Bjarki Ármann Oddssonformaður
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Preben Jón Pétursson
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirfræðslustjóri ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
Rekstur fræðslumála 2015
Málsnúmer 2015040087Rekstur fræðslumála janúar til júní 2015. Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild fór yfir stöðuna.
Úttekt á læsi í leikskólum
Málsnúmer 2015080024Sesselja Sigurðardóttir sérfræðingur á skóladeild kynnti niðurstöður úttektar á vinnu með læsi í leikskólum.
Arnarsíða og Bugðusíða - slysahætta á gatnamótum
Málsnúmer 2015050179Arnarsíða-Bugðusíða, slysahætta á gatnamótum.
Erindi sem barst í viðtalstíma bæjarfulltrúa 21. maí 2015 og bæjarráð vísaði á fundi sínum 28. maí til fræðslustjóra.
Heimir Eggerz Jóhannsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna vék af fundi undir þessum lið.Skólanefnd tekur undir áhyggjur foreldra af slysahættunni á þessum stað. Skólanefnd óskar eftir því að framkvæmdadeild Akureyrarbæjar bregðist við sem allra fyrst með lausn í þeirri viðleitni að tryggja öryggi skólabarna í umferðinni á þessu svæði.
Þjóðarsáttmáli um læsi
Málsnúmer 2015070137Þjóðarsáttmáli um læsi. Átak á vegum Mennta- og menningarmálaráðuneytis. Kynning.
Skólanefnd samþykkir þátttöku í átaki á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis um þjóðarsáttmála um læsi og hvetur Akureyrarbæ og íbúa til að taka heilshugar þátt í átakinu.
Þjóðarsáttmálinn samræmist vel áherslum skólanefndar og skólasamfélagsins á Akureyri.
Litbrigði læsis, læsi er lykillinn
Málsnúmer 2015080004Læsisátak í leik- og grunnskólum. Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri kynnti verkefnið.
Átakið Litbrigði læsis, læsi er lykillinn hefst með Menntabúðum, læsisráðstefnunni Litbrigði læsis, læsi er lykillinn, sem haldin verður í Brekkuskóla fimmtudaginn 13. ágúst 2015.