Skipulagsráð - 366
- Kl. 08:15 - 10:30
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 366
Nefndarmenn
- Þórhallur Jónssonformaður
- Sindri S. Kristjánsson
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Ólöf Inga Andrésdóttir
- Arnfríður Kjartansdóttir
- Helgi Sveinbjörn Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Pétur Ingi Haraldssonsviðsstjóri skipulagssviðs
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
- María Markúsdóttirfundarritari
Þingvallastræti 23 - umsókn um lóð
Málsnúmer 2021091122Erindi Framkvæmdasýslu ríkisins dagsett 23. september 2021 fyrir hönd heilbrigðisráðuneytisins og fjármála- og efnahagsráðuneytisins þar sem óskað er eftir úthlutun lóðarinnar Þingvallastræti 23 til byggingar heilsugæslu.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.
Holtahverfi - uppfærsla deiliskipulags
Málsnúmer 2021090577Deiliskipulagi Holtahverfis norður tók gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda þann 11. maí 2021. Við hönnun hverfisins hafa verið gerðar ýmsar minniháttar breytingar á til dæmis legu stíga, afmörkun nýrra lóða o.s.frv. Þá hafa einnig verið gerðar minniháttar breytingar í samráði við eigendur núverandi fasteigna á svæðinu eins og stækkun lóða, breytingu á aðkomu o.fl. Er deiliskipulagið lagt fram með þessum breytingum auk þess sem bætt hefur verið inn heitum á nýjum íbúagötum.
Að mati skipulagsráðs er um að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er ekki talin þörf á að grenndarkynna hana skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
Norðurgata 3, 5, 7 - fyrirspurn til skipulagssviðs
Málsnúmer 2021090303Erindi dagsett 24. september 2021 þar sem Haraldur Sigmar Árnason fyrir hönd Trésmiðju Ásgríms leggur inn fyrirspurn varðandi lóðir 3 og 5-7 við Norðurgötu. Er óskað eftir að lóðirnar verði sameinaðar og í kjölfarið unnið að breytingu á deiliskipulagi sem felur í sér heimild til að byggja fjölbýlishús fyrir allt að 16 íbúðir, með bílakjallara.
Í samræmi við bókun skipulagsráðs frá 27. janúar 2021 þarf að auglýsa lóðina með formlegum hætti áður en henni verður úthlutað. Forsenda auglýsingar lóðarinnar er að spennistöð sem er á lóðinni verði flutt. Er sviðsstjóra skipulagssviðs falið að óska eftir því við stjórn Norðurorku að spennistöðinni verði fundinn nýr staður.
Fylgiskjöl
Nonnahagi 5 - umsókn um lóð
Málsnúmer 2021030774Erindi dagsett 17. september 2021 þar sem Árni Árnason fyrir hönd Bjarkar Traustadóttur sækir um framkvæmdafrest til 30. apríl 2022 og frest á teikningaskilum til 30. janúar 2022 fyrir lóð nr. 5 við Nonnahaga.
Skipulagsráð samþykkir umbeðinn frest á framkvæmdum og skilum á teikningum.
Matthíasarhagi 8, 10 og 12 - umsókn um lóðir
Málsnúmer 2021091043Umsókn Kistu byggingarfélags dagsett 23. september 2021 um lóðirnar Matthíasarhaga 8, 10 og 12 með fyrirvara um breytingu á deiliskipulagi á þann veg að í stað þriggja einbýlishúsa á tveimur hæðum verði byggt fimm íbúða raðhús á einni hæð.
Á fundi skipulagsráðs þann 9. júní 2021 var því hafnað að breyta deiliskipulagi svæðisins með þeim hætti að á þessum lóðum verði gert ráð fyrir fimm íbúða raðhúsi á einni hæð í stað þriggja einbýlishúsa á tveimur hæðum. Að mati ráðsins hafa forsendur ekki breyst og hafnar skipulagsráð því erindinu.
Fylgiskjöl
Fluguborg 5 - umsókn um lóðarstækkun
Málsnúmer 2021090749Erindi dagsett 17. september 2021 þar sem Halldór Gunnarsson sækir um stækkun lóðar nr. 5 við Fluguborg til vesturs að reiðgötu.
Skipulagsráð tekur jákvætt í erindið og heimilar umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi. Breytingin verði unnin í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún grenndarkynnt skv. 44. gr. laganna.
Landamerki Akureyrarbæjar og Eyjafjarðarsveitar - Kristnes
Málsnúmer 2021090847Erindi Helga Þórssonar dagsett 20. september 2021 varðandi lagfæringar á sveitarfélagamörkum Akureyrabæjar og Eyjafjarðarsveitar.
Skipulagsráð felur sviðsstjóra skipulagssviðs að skoða málið í samvinnu við Eyjafjarðarsveit og umhverfis- og mannvirkjasvið.
Fylgiskjöl
Umsókn um leyfi fyrir söluvagn á Torfunefsbryggju
Málsnúmer 2021090889Erindi dagsett 13. september 2021 þar sem Maddalena Marino sækir um leyfi til að vera með söluvagn á hafnarsvæði við Glerárgötu, sjá skýringarmynd. Tímabilið er frá apríl 2022 til október 2022.
Skipulagsráð hafnar erindinu þar sem ekki er gert ráð fyrir langtímastæði fyrir söluvagna á þessum stað í gildandi samþykkt um götu- og torgsölu.
Ljóslögn Mýrarlón, Hörgárdalur - umsókn um framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 2021090895Erindi dagsett 21. september 2021 þar sem Bergur Þór Þórðarson fyrir hönd Orkufjarskipta sækir um framkvæmdaleyfi fyrir ljóslögn frá Mýrarlóni yfir í Hörgárdal. Meðfylgjandi er greinargerð og yfirlýsing landeigenda.
Skipulagsráð samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis í samræmi við fyrirliggjandi erindi.
Fylgiskjöl
Afgreiðslur byggingarfulltrúa 2021
Málsnúmer 2020120557Lögð fram til kynningar fundargerð 831. fundar, dagsett 16. september 2021, með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er 4 liðum og er að finna á heimasíðu Akureyrarbæjar.
Afgreiðslur byggingarfulltrúa 2021
Málsnúmer 2020120557Lögð fram til kynningar fundargerð 832. fundar, dagsett 23. september 2021, með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í einum lið og er að finna á heimasíðu Akureyrarbæjar.
Afgreiðslur byggingarfulltrúa 2021
Málsnúmer 2020120557Lögð fram til kynningar fundargerð 830. fundar, dagsett 8. september 2021, með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í einum lið og er að finna á heimasíðu Akureyrarbæjar.