Öldungaráð - 17
- Kl. 09:00 - 10:30
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 17
Nefndarmenn
- Helgi Snæbjarnarsonformaður
- Elías Gunnar Þorbjörnsson
- Sigríður Stefánsdóttirfulltrúi EBAK
- Halldór Gunnarssonfulltrúi EBAK
- Valgerður Jónsdóttirvarafulltrúi EBAK
- Eva Björg Guðmundsdóttirfulltrúi HSN
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
- Bjarki Ármann Oddssonforstöðumaður tómstundamála
Þjónustumiðstöð fyrir eldra fólk að Þursaholti 4 - aðkoma Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2021102306Erindi dagsett 18. október 2021 frá Hallgrími Gíslasyni formanni EBAK vegna húsnæðismála fyrir eldri borgara tengt uppbyggingu í Holtahverfi.
Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs og Bergdís Ösp Bjarkadóttir forstöðumaður í heimaþjónustu A tóku þátt í fundinum undir þessum lið í gegnum fjarfundarbúnað.Öldungaráð tekur undir það sem kemur fram í bréfi EBAK, varðandi þjónustumiðstöð í Holtahverfi. Jafnframt vill ráðið benda á að nauðsynlegt sé, að þegar útlit er fyrir fjölmennt hverfi eldri borgara þá sé horft heildstætt á uppbyggingu þjónustu bæjarins t.d. hvað varðar leiguíbúðir fyrir eldri borgara, almenningssamgöngur, útivist o.fl.
Fylgiskjöl
Aðgerðaáætlun í málefnum eldri borgara
Málsnúmer 2020010595Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður tómstundamála og Sigríður Stefánsdóttir varaformaður gerðu grein fyrir aðgerðaáætlun eldri borgara.
Öldungaráð skorar á bæjarráð að það samþykki áætlunina formlega, vísi kostnaði til fjárhagsáætlunargerðar, en samþykki aðra þætti.
Kynning á starfsemi HSN
Málsnúmer 2021091147Eva Björg Guðmundsdóttir deildarstjóri heimahjúkrunar og fulltrúi HSN í öldungaráði kynnti starfsemi HSN.
Öldungaráð þakkar Evu Björgu fyrir góða og fróðlega kynningu.
Í lok fundar vildi formaður koma á framfæri kveðju til Kristins J. Reimarssonar sviðsstjóra samfélagssvið sem verið hefur starfsmaður ráðsins. Um leið og honum er þakkað fyrir mjög gott samstarf er honum óskað velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi.Fylgiskjöl