Stjórn Akureyrarstofu - 294
- Kl. 14:00 - 17:30
- Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
- Fundur nr. 294
Nefndarmenn
- Hilda Jana Gísladóttirformaður
- Sigfús Arnar Karlsson
- Finnur Sigurðsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Karl Liljendal Hólmgeirssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
- Þórgnýr Dýrfjörðdeildarstjóri Akureyrarstofu
Fjölmiðlavaktin - fjölmiðlaumfjöllun um Akureyrarbæ 2016-2020
Málsnúmer 2016060043Ragnar Hólm Ragnarsson verkefnastjóri upplýsinga- og kynningarmála fór yfir helstu niðurstöður úr fjölmiðlaumfjöllun um Akureyrarbæ á tímabilinu október 2018 - október 2019.
Hrísey - markaðsátak
Málsnúmer 2019070521Ragnar Hólm Ragnarsson verkefnastjóri upplýsinga- og kynningarmála fór yfir helstu niðurstöður úr rannsókn RMF um ferðamenn í Hrísey 2019.
Niðurstöður þjónustukönnunar Gallup
Málsnúmer 2020010624Jón Þór Kristjánsson verkefnastjóri upplýsingamiðlunar fór yfir niðurstöður úr þjónustukönnun Gallup.
Safnastefna Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2014110087Drög að nýrri safnastefnu lögð fram til kynningar og umræðu.
Sigríður Örvarsdóttir verkefnastjóri safnastefnu sat fundinn undir þessum lið.Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að hefja samtal við aðra stofnaðila Minjasafnsins um að kannaður verði fýsileiki þess að sameina sögu- og minjasöfn sem eru að verulegu eða öllu leyti fjármögnuð af Akureyrarbæ og/eða varðveita mikilvæga sögu bæjarins.
Karl Liljendal Hólmgeirsson vék af fundi kl. 16:30.
Anna María Hjálmarsdóttir vék af fundi kl. 16:40.Kynningaráætlanir sviða 2020
Málsnúmer 2020010038Kynningaráætlun samfélagssviðs 2020 lögð fram til kynningar.
Minjasafnið á Akureyri - endurnýjun þjónustusamnings
Málsnúmer 2016040100Lagður fram til samþykktar viðauki við þjónustusamning Akureyrarbæjar og Minjasafnsins frá 2018.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir framlagðan viðauka.
Menningarfélag Akureyrar - endurnýjun samninga MH, LA og SN
Málsnúmer 2016120092Lagður fram til samþykktar viðauki við samning Akureyrarbæjar og MAk vegna viðbótarframlags frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu en stjórn Akureyrarstofu samþykkti á síðasta fundi að hlutur MAk vegna Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands væri 8 milljónir.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir framlagðan viðauka.