Fræðslu- og lýðheilsuráð - 15
- Kl. 13:00 - 15:15
- Hlíðarskóli
- Fundur nr. 15
Nefndarmenn
- Heimir Örn Árnasonformaður
- Hulda Elma Eysteinsdóttir
- Bjarney Sigurðardóttir
- Óskar Ingi Sigurðsson
- Tinna Guðmundsdóttir
- Ásrún Ýr Gestsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Ísak Már Jóhannessonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Bjarki Ármann Oddssonforstöðumaður skrifstofu ritaði fundargerð
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
- Björg Sigurvinsdóttirfulltrúi leikskólastjóra
- Daníel Sigurður Eðvaldssonfulltrúi foreldra grunnskólabarna
- Ingi Jóhann Friðjónssonfulltrúi leikskólakennara
- Ólöf Inga Andrésdóttirfulltrúi skólastjóra
Heimsókn í Hlíðarskóla
Málsnúmer 2022081470Valdimar Heiðar Valsson skólastjóri Hlíðarskóla tók á móti fræðslu- og lýðheilsuráði og sýndi skólahúsnæðið og sagði frá starfsemi skólans.
Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar Valdimar Heiðari kærlega fyrir kynninguna.
Kynning á menntastefnu Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2020080319Kristrún Lind Birgisdóttir kynnti menntastefnu Akureyrarbæjar og næstu skref innleiðingarferlisins.
Erna Rós Ingvarsdóttir verkefnastjóri leikskóla sat fundinn undir þessum lið.Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar Kristrúni fyrir kynninguna.
Menntastefnan er aðgengileg á heimasíðunni https://menntastefna.akureyri.is/ og hvetur ráðið íbúa að kynna sér stefnuna.Leikskólar - innra mats skýrslur
Málsnúmer 2021081348Erna Rós Ingvarsdóttir verkefnastjóri leikskóla kynnti innra mats skýrslur og starfsáætlanir leikskólanna.
Fræðslu- og lýðheilsuráð staðfestir fyrirliggjandi innra mats skýrslur og starfsáætlanir.
Þróunarleiðtogar skv. mannréttindastefnu Akureyrarbæjar 2022-2025
Málsnúmer 2022060687Lögð fram mannréttindarstefna Akureyrarbæjar 2022 til 2023 þar sem meðal annars er gert ráð fyrir að ráð bæjarins skipi þróunarleiðtoga sem verða málsvarar kynjasamþættingar og mannréttinda og hafi innsýn og þekkingu á mannréttindum.
Fræðslu- og lýðheilsuráð skipar Heimi Örn Árnason þróunarleiðtoga ráðsins samkvæmt mannréttindarstefnu Akureyrarbæjar.
Fylgiskjöl
Rekstur fræðslu- og lýðheilsusviðs 2022
Málsnúmer 2022030187Árni K. Bjarnason rekstrarstjóri gerði grein fyrir rekstrarstöðu fræðslu- og lýðheilsusviðs á tímabilinu janúar til júlí 2022.
Fjárhagsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðs 2023-2026
Málsnúmer 2022060686Árni K. Bjarnason rekstrarstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs, Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála og Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu fóru yfir stöðu fjárhagsáætlunar fyrir sviðið.