Stjórn Akureyrarstofu - 131
- Kl. 16:00 - 18:00
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 131
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Sigmundur Ófeigssonvaraformaður
- Jón Hjaltason
- Guðrún Þórsdóttir
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Matthías Rögnvaldssonáheyrnarfulltrúi
- Regína Helgadóttiráheyrnarfulltrúi
- Unnsteinn Jónssonáheyrnarfulltrúi
- Þórgnýr Dýrfjörðfundarritari
Flugklasi - samstarf um millilandaflug til Norðurlands
Málsnúmer 2011060107Arnheiður Jóhannsdóttir verkefnisstjóri flugklasans mætti á fundinn og gerði grein fyrir helstu verkefnum hans og hvernig þau standa.

Stjórn Akureyrarstofu þakkar Arnheiði fyrir greinargóða kynningu á stöðunni og gagnlegar umræður í kjölfarið.

Norðurslóðamál - verkefni 2012
Málsnúmer 2012100155Borist hefur beiðni frá aðstandendum sýningarinnar Arsborealis um þátttöku Akureyrarstofu í stækkun hennar og þróun, en til stendur að hún verði farandsýning sem fari milli landa á norðurslóðum.\nHalla Björk Reynisdóttir L-lista vék af fundi undir þessum lið.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að taka þátt í áframhaldandi þróun sýningarinnar með það fyrir augum að kynning á Akureyri sem miðstöð norðurslóðamála á Íslandi verði hluti hennar. Framlag Akureyrarstofu verður í formi vinnu og aðstoð við markaðssetningu.

Endurskoðun menningarstefnu Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2011020012Farið yfir stöðuna í vinnu við endurnýjaða stefnu Akureyrarbæjar í menningarmálum. Breyta þarf tímaáætlun verkefnisins og er nú stefnt að því að opinn fundur þar sem drög að nýrri stefnu verða kynnt verði haldinn þann 15. nóvember 2012 kl. 16:15.

Aukin samvinna menningarstofnana - viðræður LA, MH og SN 2012
Málsnúmer 2012090021Greint frá framgangi viðræðna Leikfélags Akureyrar, Menningarfélagsins Hofs og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.

Stjórn Akureyrarstofu - rekstraryfirlit 2012
Málsnúmer 2012040130Lagt fram til kynningar 9 mánaða rekstraryfirlit fyrir málaflokka stjórnar Akureyrarstofu á árinu 2012.