Atvinnumálanefnd - 9
- Kl. 16:00 - 18:00
- Fundarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 9
Nefndarmenn
- Matthías Rögnvaldssonformaður
- Erla Björg Guðmundsdóttir
- Jóhann Jónsson
- Elías Gunnar Þorbjörnsson
- Margrét Kristín Helgadóttir
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Albertína Friðbjörg Elíasdóttirfundarritari
Fundaáætlun atvinnumálanefndar 2015-2016
Málsnúmer 2015020154Til fundarins mættu fulltrúar stjórnar Samtaka atvinnurekenda á Akureyri (SATA) til að ræða stöðu atvinnumála í sveitarfélaginu og hvernig hægt er að hafa samtalið milli sveitarfélagsins og atvinnulífsins sem mest og virkast.
Fyrir hönd SATA mættu Árni V. Friðriksson formaður, Kristín Halldórsdóttir, Hólmgrímur Bjarnason, Hjörtur Narfason og Fjóla Karlsdóttir til fundarins.
Einnig var farið yfir fundaáætlun atvinnumálanefndar 2015-2016 og drög að kynningarbréfi til að senda út til fyrirtækja á Akureyri.Atvinnumálanefnd samþykkir að kynningarbréf verði sent út á fyrirtæki á Akureyri og felur atvinnufulltrúa að gera það.
Fulltrúar stjórnar SATA yfirgáfu fundinn kl. 17:15.
Atvinnumálanefnd - fjárhagsáætlun 2016
Málsnúmer 2015090140Farið var yfir fyrirhuguð verkefni atvinnumálanefndar á næsta ári í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar 2016.
Atvinnumálanefnd samþykkir að leggja til við bæjarráð að bætt verði við kr. 7.000.000 vegna kostnaðar við verkefnið Brothættar byggðir.
Að öðru leyti er umfjöllun frestað til næsta fundar.Brothættar byggðir
Málsnúmer 2015070054Frestað til næsta fundar.
Verkefni atvinnufulltrúa
Málsnúmer 2015070006Frestað til næsta fundar.