Íþróttaráð - 151
- Kl. 13:00 - 15:00
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 151
Nefndarmenn
- Tryggvi Þór Gunnarssonformaður
- Geir Kristinn Aðalsteinsson
- Helga Eymundsdóttir
- Árni Óðinsson
- Erlingur Kristjánsson
- Jón Einar Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
- Ragnheiður Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Örvar Sigurgeirssonáheyrnarfulltrúi
- Ellert Örn Erlingsson
- Katrín Björg Ríkarðsdóttirfundarritari
Hlíðarfjall - starfsmannamál
Málsnúmer 2014050114Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður Hlíðarfjalls mætti á fund ráðsins og kynnti hugmyndir varðandi starfsmannamál.

Íþróttaráð tekur vel í erindið og felur forstöðumanni Hlíðarfjalls, forstöðumanni íþróttamála og framkvæmdastjóra samfélags- og mannréttindadeildar að vinna málið áfram við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.

Hálönd - frístundabyggð, deiliskipulag 2. áfangi
Málsnúmer 2013080065Lögð fram til kynningar og umræðu umsögn Guðmundar Karls Jónssonar forstöðumanns Hlíðarfjalls vegna tillögu að deiliskipulagi fyrir 2. áfanga Hálanda í Hlíðarfjalli.\nGuðmundur Karl Jónsson sat fundinn undir þessum lið.

Aðildarfélög ÍBA - áætlanir og ársreikningar
Málsnúmer 2012100168Skíðafélag Akureyrar - ársreikningur fyrir starfsárið 2013 lagður fram til kynningar.

Íþróttaráð lýsir yfir ánægju sinni með niðurstöðu ársreiknings Skíðafélags Akureyrar.

Aðildarfélög ÍBA - áætlanir og ársreikningar
Málsnúmer 2012100168Skautafélag Akureyrar - ársreikningur fyrir starfsárið 2013 lagður fram til kynningar.

Íþróttaráð lýsir yfir ánægju sinni með niðurstöðu ársreiknings Skautafélags Akureyrar.

Aðildarfélög ÍBA - áætlanir og ársreikningar
Málsnúmer 2012100168Íþróttafélagið Þór. Kynnt voru viðbrögð og aðgerðir stjórnar Þórs vegna reksturs félagsins árið 2013 og bókunar íþróttaráðs frá 8. maí sl.\nÁrni Óðinsson fulltrúi S-lista og Ragnheiður Jakobsdóttir áheyrnarfulltrúi D-lista viku af fundi við umræður og afgreiðslu þessa liðar.

Íþróttaráð lýsir ánægju með svör frá Íþróttafélaginu Þór og felur forstöðumanni íþróttamála og fjármálastjóra Akureyrarbæjar að vinna áfram með félaginu.

Skotfélag Akureyrar - samkomulag um notkun aðstöðu í kjallara íþróttahallarinnar
Málsnúmer 2014050112Lögð fram til kynningar drög að samkomulagi við Skotfélag Akureyrar vegna aðstöðu félagsins í kjallara Íþróttahallarinnar.

Íþróttaráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti og felur forstöðumanni íþróttamála að ganga frá samningnum.

Kvenna/jafnréttisstyrkir íþróttaráðs
Málsnúmer 2014040042Drög að viðmiðum og vinnureglum vegna kvenna/jafnréttisstyrkja lögð fram til framhaldsumræðu frá síðasta fundi íþróttaráðs.

Íþróttaráð samþykkir drögin með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum og felur forstöðumanni íþróttamála að klára viðmiðin og vinnureglurnar.