Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 695
- Kl. 13:00 - 14:00
- Fundarherbergi skipulagssviðs
- Fundur nr. 695
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonbyggingarfulltrúi
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Víðimýri 3 - umsókn um byggingarleyfi fyrir kvisti og breytingu á gluggum
Málsnúmer 2018040124Erindi dagsett 9. apríl 2018 þar sem Jónas Vigfússon fyrir hönd Hrafnkels Reynissonar og Lilju K. Bjarnadóttur sækir um byggingarleyfi fyrir kvisti og breytingu á gluggum á húsi nr. 3 við Víðimýri. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Jónas Vigfússon. Innkomnar nýjar teikningar 8. október 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Kristjánshagi 4 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2018080136Erindi dagsett 9. ágúst 2018 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Tréverks ehf., kt. 660269-2829, sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 4 við Kristjánshaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 18. október 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Óseyri 33 - umsókn um byggingarleyfi fyrir hreinsistöð
Málsnúmer 2017020126Mótteknar teikningar 9. október 2018 þar sem Gísli Kristinsson fyrir hönd Norðurorku hf., kt. 550978-0169, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir hreinsistöð á lóð nr. 33 við Óseyri. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gísla Kristinsson.
Byggingafulltrúi samþykkir erindið.
Kristjánshagi 8A - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2018090101Erindi dagsett 6. september 2018 þar sem Þröstur Sigurðsson fyrir hönd Byggingarfélagsins Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 8A við Kristjánshaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason. Innkomnar nýjar teikningar 9. október 2018. Jafnframt er óskað eftir heimild til jarðvegsskipta á grundvelli innlagðra teikninga.
Byggingarfulltrúi heimilar jarðvegsskipti en frestar afgreiðslu að öðru leyti með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Kristjánshagi 8B - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2018090096Erindi dagsett 6. september 2018 þar sem Þröstur Sigurðsson fyrir hönd Byggingarfélagsins Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 8B við Kristjánshaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason. Innkomnar nýjar teikningar 9. október 2018. Jafnframt er óskað eftir heimild til jarðvegsskipta á grundvelli innlagðra teikninga.
Byggingarfulltrúi heimilar jarðvegsskipti en frestar afgreiðslu að öðru leyti með vísan til athugasemda á fylgiblaði.