Bæjarráð - 3369
- Kl. 09:00 - 11:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3369
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Geir Kristinn Aðalsteinsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
- Sigurður Guðmundsson
- Logi Már Einarssonáheyrnarfulltrúi
- Ólafur Jónssonáheyrnarfulltrúi
- Petrea Ósk Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dan Jens Brynjarssonfjármálastjóri
- Jón Bragi Gunnarssonhagsýslustjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Langtímaáætlun - Öldrunarheimili Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2013050182Unnið að langtímaáætlun Öldrunarheimila Akureyrarbæjar. \nHalldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar og Inda Björk Gunnarsdóttir formaður félagsmálaráðs mættu á fundinn undir þessum lið.

Hverfisnefnd Síðuhverfis - fundargerðir 2013
Málsnúmer 2013040251Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar hverfisnefndar Síðuhverfis dags. 13. maí 2013.\nFundargerðina má finna á vefslóðinni: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/siduhverfi/fundargerdir

Hverfisnefnd Brekku- og Innbæjar - fundargerðir 2013
Málsnúmer 2013010292Lagðar fram til kynningar fundargerðir hverfisnefndar Brekku- og Innbæjar dags. 13. febrúar og 6. mars 2013.\nFundargerðirnar má finna á vefslóðinni: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/brekka-og-innbaer/fundargerdir

Orlof húsmæðra í Eyjafirði - rekstur 2012
Málsnúmer 2013050133Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur Orlofssjóðs húsmæðra í Eyjafirði árið 2012.

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2014-2017
Málsnúmer 2013050198Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri lagði fram tillögu að fjárhagsáætlunarferli og tímaáætlun vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árin 2014-2017.

Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um fjárhagsáætlunarferlið og tímaáætlun.

Námsstyrkjasjóður sérmenntaðra starfsmanna - staða sjóðsins
Málsnúmer 20120901522. liður í fundargerð fræðslunefndar dags. 22. maí 2013:\nNámsstyrkjasjóður sérmenntaðra starfsmanna. Staða sjóðsins rædd.\nUm áramótin 2008-2009 var ákveðið að gera tímabundið hlé á fjárveitingu í Námsstyrkjasjóð sérmenntaðra starfsmanna. Fræðslunefnd hefur frá árinu 2010 óskað eftir að aftur verði veitt fjármagni í sjóðinn sbr. bréf dags. 6. desember 2010. Á fundi kjarasamninganefndar 26. september 2011 ákvað nefndin að framlengja hléið um eitt ár með svofelldri bókun: \n \n,,Formaður kjarasamninganefndar hefur farið yfir tilurð sjóðsins ásamt meirihluta bæjarráðs og ákvörðun verið tekin um að ekki verði sett fjármagn til Námsstyrkjasjóðs sérmenntaðra starfsmanna á árinu 2012, þar sem sá sjóður er ekki bundinn kjarasamningum. Þar með er ljóst að það tímabundna hlé sem gert var á greiðslum til sjóðsins hefur verið lengt um eitt ár."\n \nÁ fundi fræðslunefndar 17. september 2012 bókaði nefndin eftirfarandi: \n \n,,Með vísan til framangreindrar bókunar kjarasamninganefndar óskar fræðslunefnd eftir upplýsingum um fjárveitingar til sjóðsins og skorar á bæjarráð að fella úr gildi tímabundið hlé sem hefur verið gert á greiðslum til sjóðsins frá árinu 2009." \n \nFræðslunefnd ítrekar erindi sitt og skorar á bæjarráð að veita að nýju fjármagni til Námsstyrkjasjóðs sérmenntaðra starfsmanna frá hausti 2013.

Bæjarráð vísar málinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2014.

Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir veturinn 2012-2013
Málsnúmer 2012010167Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 16. maí 2013. Fundargerðin er í 4 liðum.

Bæjarráð vísar 1. lið til framkvæmdadeildar, 2. og 3. lið til skipulagsdeildar og 4. lið til bæjarlögmanns.

Oddeyrartangi - eignarlóðir
Málsnúmer 2013030025Lóðamál á Oddeyri. Tekið fyrir að nýju, áður á dagskrá bæjarráðs 7. mars sl.

Bæjarráð felur fjármálastjóra að ganga frá kaupsamningi vegna málsins.

Nauðungarsölur - opið bréf til sveitarstjórna
Málsnúmer 2013050201Lagt fram til kynningar opið bréf til sveitarfélaga á landsvísu dags. 24. maí 2013 frá Hagsmunasamtökum heimilanna þar sem fram kemur áskorun samtakanna sem gerð var á aðalfundi 15. maí sl.