Bæjarráð - 3600
- Kl. 08:15 - 10:43
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3600
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Hilda Jana Gísladóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Hlynur Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Kristín Sóley Sigursveinsdóttirforstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar ritaði fundargerð
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2019-2022 - tekjuáætlun
Málsnúmer 2018050147Lögð fram drög að tekjuáætlun fyrir árið 2019 vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusvið sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Afgreiðslu frestað.
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2019-2022 - forsendur
Málsnúmer 2018050147Umræða um forsendur fjárhagsáætlunar.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Trúnaðaryfirlýsing bæjarfulltrúa, nefndamanna og áheyrnarfulltrúa 2018-2022
Málsnúmer 2018060368Lögð fram tillaga að texta í trúnaðaryfirlýsingu bæjarfulltrúa, nefndamanna og áheyrnarfulltrúa 2018-2022.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu og felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að kalla eftir undirrituðum trúnaðaryfirlýsingum bæjarfulltrúa, nefndarmanna og áheyrnarfulltrúa.
Gunnar Gíslason D-lista situr hjá við afgreiðslu og leggur fram svohljóðandi bókun:
Ég tel enga ástæðu til að vottar staðfesti undirritun, sem í raun flækir málið svo að það verður ekki undirritað rafrænt.Fylgiskjöl
Trúnaðaryfirlýsing starfsmanna ráða og nefnda 2018-2022
Málsnúmer 2018060369Lögð fram tillaga að texta í trúnaðaryfirlýsingu starfsmanna ráða og nefnda 2018-2022.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu og felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að kalla eftir undirrituðum trúnaðaryfirlýsingum starfsmanna ráða og nefnda.
Gunnar Gíslason D-lista situr hjá við afgreiðslu og leggur fram svohljóðandi bókun:
Ég tel enga ástæðu til að vottar staðfesti undirritun, sem í raun flækir málið svo að það verður ekki undirritað rafrænt.Fylgiskjöl
Verklagsreglur um ritun fundargerða og birtingu fylgigagna með fundargerðum - endurskoðun vor 2018
Málsnúmer 2018050226Lögð fram tillaga að endurskoðuðum verklagsreglum um ritun fundargerða og birtingu fylgigagna með fundargerðum. Tillagan gerir ráð fyrir að sameinaðar verði í eitt skjal verklagsreglur sem áður voru í tveimur skjölum. Jafnframt er skerpt á nokkrum atriðum m.a. að birta beri öll fylgiskjöl nema lög kveði á um annað.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Inga Þöll Þórgnýsdóttur bæjarlögmaður sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að vinna reglurnar áfram í samræmi við umræður á fundinum. Afgreiðslu frestað.
Kjarasamningur Félags grunnskólakennara - 2018
Málsnúmer 2018060360Kynning á kjarasamningi Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og sviðsstjóra fjársýslusviðs að vinna viðauka við fjárhagsáætlun vegna samningsins.
Fylgiskjöl
Kjarasamningur Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum - 2018
Málsnúmer 2018060361Kynning á kjarasamningi Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og sviðsstjóra fjársýslusviðs að vinna viðauka við fjárhagsáætlun vegna samningsins.
Fylgiskjöl
Kjarasamningar við aðildarfélög BHM og önnur háskólafélög
Málsnúmer 20160400084. liður í fundargerð kjarasamninganefndar dagsett 31. maí 2018:
Kynnt samkomulög Sambands íslenskra sveitarfélaga við aðildarfélög BHM, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Verkfræðingafélag Íslands og Félag byggingarfræðinga vegna innleiðingar starfsmats samkvæmt kjarasamningum aðila.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og sviðsstjóra fjársýslusviðs að vinna viðauka við fjárhagsáætlun vegna samninganna.
Fylgiskjöl
Kosning nefnda 2018-2022
Málsnúmer 2018060032Kjarasamninganefnd: 3 aðalmenn og 3 til vara.
Fram kom tillaga með nöfnum þessara aðalmanna:
Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
Guðrún Karitas Garðarsdóttir varaformaður
Gunnar Gíslason
og varamanna:
Ingibjörg Ólöf Isaksen
Brynhildur Pétursdóttir
Eva Hrund EinarsdóttirBæjarráð samþykkir tillöguna.
Ný persónuverndarlög
Málsnúmer 2017080040Kynnt verkáætlun fyrir Akureyrarbæ vegna innleiðingar nýrra persónuverndarlaga.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður, Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir framlagða verkáætlun.
Fylgiskjöl
Lækjargata 13 - lóð boðin til kaups
Málsnúmer 2018060307Erindi dagsett 14. júní 2018 frá Matthildi Ágústsdóttur þar sem hún lýsir yfir áhuga á að leggja lóðina Lækjargötu 13 inn til Akureyrarbæjar ef semst um lóðarverð.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til umsagnar skipulagsráðs. Jafnframt verði kannað hver staðan er á vinnu vegna stefnu um uppkaup eigna sem á að færa eða rífa.
Naust 2 - ósk um viðræður og rekstrarleyfi fyrir "glamping" svæði
Málsnúmer 2018050291Erindi dagsett 12. maí 2018 frá Magna Rúnari Magnússyni og Hörpu Birgisdóttur þar sem þau óska eftir viðræðum við bæjaryfirvöld um rekstur á "glamping" (glamorous camping) á Naustum 2.
Bæjarráð vísar erindinu til skipulagsráðs.
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar - aðalfundur 2018
Málsnúmer 2018060050Erindi dagsett 1. júní frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar þar sem tilkynnt er að aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 21. júní kl. 16:00 í Grenivíkurskóla. Fyrir fundinn verða lagðar tillögur að breytingum á samþykktum.
Bæjarráð felur Hildu Jönu Gísladóttur bæjarfulltrúa að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum. Bæjarráð samþykkir þær tillögur að breytingum á samþykktum sem munu verða lagðar fram á fundinum.
Fylgiskjöl
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2018
Málsnúmer 2018030432Lögð fram til kynningar fundargerð 860. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 18. maí 2018.
Fundargerðina má finna á vefslóðinni: http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/searchmeetings.aspx