Íþróttaráð - 190
18.04.2016
Hlusta
- Kl. 15:00 - 16:12
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 190
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Arnar Þór Jóhannesson
- Birna Baldursdóttir
- Jónas Björgvin Sigurbergsson
- Þórunn Sif Harðardóttir
- Guðrún Þórsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ellert Örn Erlingssonforstöðumaður íþróttamála ritaði fundargerð
Árni Óðinsson S-lista boðaði forföll og mætti Arnar Þór Jóhannesson í hans stað. [line][line]Guðrún Þórsdóttir kom til fundar kl. 15:14.[line][line]
Hjólað í vinnuna
Málsnúmer 2014040044Umræður og kynning um vinnustaðakeppnina 'Hjólað í vinnuna' á vegum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands sem fer fram 4.- 24. maí næstkomandi.
Íþróttaráð óskar eftir að Heilsuráð Akureyrarbæjar annist verkefnið "Hjólað í vinnuna".
Fundaáætlun íþróttaráðs
Málsnúmer 2013010128Umræður um fundaáætlun vorið 2016.
Íþróttabandalag Akureyrar ÍBA - samskipti við íþróttaráð
Málsnúmer 2016040029Stjórn ÍBA mætti á fund íþróttaráðs til umræðna um íþróttastarf á Akureyri.
Geir Kristinn Aðalsteinsson formaður, Þóra Leifsdóttir framkvæmdarstjóri, Ármann Ketilsson, Erlingur Kristjánsson og Hörður Sigurharðarson mættu fyrir hönd ÍBA til fundarins.Íþróttaráð þakkar stjórn ÍBA fyrir komuna á fundinn.
Formanni og forstöðumanni íþróttamála falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.