Stjórn Akureyrarstofu - 222
- Kl. 16:15 - 18:40
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 222
Nefndarmenn
- Unnar Jónssonformaður
- Sigfús Arnar Karlsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Guðmundur Magni Ásgeirssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þórgnýr Dýrfjörðframkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Menningarfélag Akureyrar - endurnýjun saminga MH, LA og SN
Málsnúmer 2016120092Farið yfir drög að samningi Akureyrarbæjar og Menningarfélags Akureyrar, f.h. Menningarfélagsins Hofs, Leikfélags Akureyrar og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir samninginn fyrir sitt leyti. Vegna ákvæða um árangurstengt framlag og þátttöku í rekstrarkostnaði almenningssalerna Hofs yfir sumartímann þarf samningurinn staðfestingar bæjarráðs við.
Menningarsjóður 2017 - styrkveitingar
Málsnúmer 2017010109Anna Hildur Guðmundsdóttir L-lista vék af fundi kl. 17:00. <br />
Rætt um fyrirkomulag styrkveitinga úr Menningarsjóði árið 2017 og hugmynd þess efnis að hluti styrkveitinga verði tileinkaðar 100 ára afmæli Leikfélags Akureyrar á þessu ári.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að kr. 500.000 af áætluðum styrkveitingum ársins fari til verkefna sem tengjast Leikfélagi Akureyrar og 100 ára afmæli þess.
Minjasafnið á Akureyri - ársreikningur 2015
Málsnúmer 2017010108Ársreikningur Minjasafnsins 2015 lagður fram til kynningar.