Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra - 2
12.09.2016
Hlusta
- Kl. 13:00 - 14:30
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 2
Nefndarmenn
- Jón Heiðar Jónssonformaður
- Jón Heiðar Daðason
- Lilja Guðmundsdóttir
- Sigurjón Jóhannesson
Starfsmenn
- Leifur Þorsteinssonfundarritari
Miðbær - deiliskipulagsbreyting vegna fjölgunar lóða og breytingu á Torfunefsbryggju
Málsnúmer 2016010086Lögð var fram til kynningar skipulagstillaga að fjölgun lóða á Torfunefi og í Hofsbót. Tillagan var auglýst frá 25. maí með athugasemdafresti til 6. júlí 2016. Skipulagsgögn voru aðgengileg í þjónustuanddyri Ráðhúss Akureyrar og á heimasíðu skipulagsdeildar.
Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra gerir ekki athugasemdir við tillöguna sem slíka en óskar eftir við framkvæmdadeild að deiliuppdrættir af frágangi og útfærslum á svæðinu og vegna nýrrar gönguleiðar að Strandgötu verði lagðar fyrir nefndina á hönnunarstigi.