Stjórn Akureyrarstofu - 229
06.04.2017
Hlusta
- Kl. 16:15 - 18:-1
- Héraðsskjalasafnið
- Fundur nr. 229
Nefndarmenn
- Unnar Jónssonformaður
- Sigfús Arnar Karlsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Þórhallur Jónsson
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs
Þórhallur Jónsson D-lista sat fundinn í forföllum Evu Hrundar Einarsdóttur.
Eva Dögg Fjölnisdóttir áheyrnarfulltrúi Æ-lista boðaði forföll sem og varamaður hennar.
Akureyrarstofa - samráðsfundir með forstöðumönnum menningarstofnana 2017
Málsnúmer 2017040024Aðalbjörg Sigmarsdóttir héraðsskjalavörður og Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður mættu á fundinn og kynntu starfsemi safnanna. Að kynningu lokinni var farin skoðunarferð um húsið og skoðuð aðstaða Héraðsskjalasafnsins annars vegar og Amtsbókasafnsins hins vegar.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar fyrir góðar móttökur og áhugaverðar kynningar.
Stjórn Akureyrarstofu - rekstraryfirlit 2017
Málsnúmer 2017030083Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit fyrir málaflokka stjórnar Akureyrarstofu fyrir fyrstu 3 mánuði yfirstandandi árs.