Umhverfis- og mannvirkjaráð - 114
- Kl. 08:15 - 11:15
- Fjarfundur
- Fundur nr. 114
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónsson
- Sunna Hlín Jóhannesdóttir
- Þórhallur Harðarson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Niðurstöður þjónustukönnunar Gallup 2021
Málsnúmer 2022010732Farið yfir niðurstöður þjónustukönnunar Gallup 2021.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.Heilbrigðisnefnd Norðurlandssvæðis eystra - athafnasvæði og gámar í sveitarfélaginu
Málsnúmer 2021120798Lögð fram fundargerð 222. fundar heilbrigðisnefndar Norðurlandssvæðis eystra dagsett 24. nóvember 2021.
Bæjarráð vísar töluliðum 1-3 undir liðnum önnur mál í fundargerðinni til umhverfis- og mannvirkjaráðs.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð vísar liðum 1-3 til þjónustu- og skipulagssviðs og umhverfis- og mannvirkjasviðs. Óskar ráðið eftir því að upplýsinga sé aflað um heimildir og ábyrgðarskiptingu milli umhverfis- og mannvirkjasviðs, þjónustu- og skipulagssviðs og heilbrigðiseftirlitsins. Ráðið felur umhverfis- og mannvirkjasviði að ljúka við hreinsun á gler- og múrbrotshaugum í Sjafnarnesi.
Fylgiskjöl
Hamrar - flatir, yfirborðsfrágangur, fráveita og lagnir
Málsnúmer 2020050193Lögð fram stöðuskýrsla dagsett 9. febrúar 2022 varðandi framkvæmdir við nýjar tjaldflatir, fráveitu og yfirborðsfrágang að Hömrum.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri á umhverfis- og sorpdeild sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð fagnar framkvæmdinni.
Fylgiskjöl
Félagssvæði KA - gervigrasvellir
Málsnúmer 2021120734Lagt fram minnisblað dagsett 9. febrúar 2022 varðandi opnun tilboða og val á gervigrasi á fótboltavelli hjá KA.
Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við Metatron ehf. um kaup á gervigrasinu, LigaTurf RS Pro II CP 240 18/4, á grundvelli tilboðs þeirra númer 2. Heildarkostnaður við gervigras og búnað á báða vellina er samkvæmt því kr. 182,4 milljónir.
Gervigras - tækjakaup
Málsnúmer 2022020411Lagt fram minnisblað dagsett 27. janúar 2022 varðandi tækjakaup fyrir viðhald á gervigrasvöllum Akureyrarbæjar.
Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að keypt verði vél frá SMG í Þýskalandi með búnaði fyrir umhirðu á öllum gervigrasvöllum Akureyrarbæjar. Samþykkt er að upphæðin, kr. 9 milljónir verði tekin af búnaðarkaupalið UMSA.
Ástand gervigrass og undirlags í Boganum
Málsnúmer 2021111572Lagt fram minnisblað dagsett 9. febrúar 2022 varðandi ástand gervigrass í Boganum.
Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð telur nauðsynlegt að gervigras í Boganum verði endurnýjað á árinu 2023 og vísar því til fjárhagsáætlunargerðar haustið 2022.
Búnaðarsjóður UMSA 2022
Málsnúmer 2022011345Lagt fram minnisblað dagsett 9. febrúar 2022 varðandi búnaðarkaup fyrir FIMAK.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir beiðni fræðslu- og lýðheilsuráðs um kaup á dýnum í Íþróttamiðstöð Giljaskóla fyrir FIMAK að upphæð kr. 3,5 milljónir og verði það tekið af búnaðarkaupasjóði UMSA.