Umhverfis- og mannvirkjaráð - 93
- Kl. 08:15 - 10:55
- Fjarfundur
- Fundur nr. 93
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Sigurjón Jóhannesson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Steindór Ívar Ívarssonforstöðumaður viðhaldsdeildar
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður nýframkvæmda
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Kynningaráætlun UMSA
Málsnúmer 2021011645Lögð fram drög að kynningaráætlun UMSA fyrir árið 2021.
Breyting á lögum um meðhöndlun úrgangs
Málsnúmer 2020010313Umræður um drög að breytingu á lögum vegna innleiðingar hringrásarhagkerfis.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð felur umhverfis- og mannvirkjasviði að vinna umsögn við lögin í samræmi við umræður á fundinum.
Umhverfis- og mannvirkjaráð óskar eftir minnisblaði í framhaldinu hvað varðar kostnað og tölulegar upplýsingar um sorphirðu á Akureyri.Austursíða 2 - umsögn UMSA vegna skipulags
Málsnúmer 2021011654Lagt fram minnisblað dagsett 24. janúar 2021 varðandi rýni UMSA á deiliskipulagsdrögum við Austursíðu 2.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri tækni og hönnunar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða umsögn og felur embættismönnum að koma umsögninni á framfæri við skipulagsráð.
Fylgiskjöl
Týsnes - gatnagerð og lagnir
Málsnúmer 2019020223Lagt fram skilamat á gatnaframkvæmdum við Týsnes dagsett 21. janúar 2021.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri tækni og hönnunar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis og mannvirkjaráð þakkar kynninguna.
Fylgiskjöl
Kirkjutröppur - viðhald
Málsnúmer 2021011641Lagt fram minnisblað dagsett 20. janúar 2021 varðandi ástand kirkjutrappanna frá Kaupvangsstræti upp að Akureyrarkirkju.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri tækni og hönnunar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð óskar eftir að áfram verði unnin áætlun um endurbætur á kirkjutröppunum ásamt kostnaðaráætlun.
Loftgæðamál bygginga 2021
Málsnúmer 2021011697Lagt fram minnisblað dagsett 21. janúar 2021 varðandi loftgæði og rannsóknir í nokkrum byggingum Akureyrarbæjar.
Ráðhúsið á Akureyri
Málsnúmer 2021011696Lagt fram minnisblað dagsett 27. janúar 2021 varðandi áætlannir um endurbætur á og viðbyggingu við Ráðhúsið á Akuryeri.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að efna til forvals vegna hönnunar á viðbyggingu og endurbótum á Ráðhúsinu við Geislagötu og að kanna möguleikann á því að fá vistvæna vottun á framkvæmdina.
Bílastæðasjóður - gjaldtaka
Málsnúmer 2019050628Rætt um gjaldtöku á bílastæðum á ákveðnum svæðum á Akureyri.