Stjórn Akureyrarstofu - 94
- Kl. 16:00 - 18:00
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 94
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Jón Hjaltason
- Sigmundur Ófeigsson
- Guðrún Þórsdóttir
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Þórgnýr Dýrfjörðfundarritari
Menningarfélagið Hof ses - ósk um endurnýjun samstarfssamnings félagsins og Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2011030188Lagt fram bréf ódags. frá Karli Frímannssyni f.h. Menningarfélagsins Hofs ses þar sem óskað er eftir viðræðum um endurnýjun samnings Akureyrarbæjar og félagsins um rekstur Hofs, en samningurinn rennur út í lok ársins 2011.

Stjórn Akureyrarstofu tekur jákvætt í erindið og samþykkir að fela framkvæmdastjóra að hefja viðræður við félagið.

Akureyrarstofa - fyrirtækjaheimsóknir 2011
Málsnúmer 2011030189Sævar Pétursson verkefnisstjóri atvinnumála mætti á fundinn undir þessum lið og greindi frá verkefnum sínum á fyrstu mánuðum í starfi. Fór hann sérstaklega yfir heimsóknir í fyrirtæki á Akureyri og hvaða ályktanir má draga af þeim upplýsingum sem fram hafa komið. \nÞá ræddi stjórnin um næstu skref.\nNjáll Trausti Friðbertsson D-lista og Matthías Rögnvaldsson A-lista mættu sem gestir undir þessum lið.

Sóley Björk Stefánsdóttir vék af fundi kl. 16:55.$line$Guðrún Þórsdóttir kom á fund stjórnarinnar í stað Sóleyjar kl. 17:15.
Starfsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2011-2014
Málsnúmer 2011010071Áfram haldið vinnu við starfsáætlun og stefnt að því að ljúka henni á næsta fundi stjórnar.\nNjáll Trausti Friðbertsson D-lista og Matthías Rögnvaldsson A-lista mættu sem gestir undir þessum lið.

Spurningaþátturinn Útsvar á Akureyri
Málsnúmer 2011030192Spurningaþátturinn Útsvar verður haldinn í Hofi föstudagskvöldið 1. apríl nk.

Stjórn Akureyrarstofu fagnar sérstaklega ákvörðun RÚV um að sýna úrslitakeppni Útsvars í beinni útsendingu frá Hofi.

Einnig þakkar stjórnin Íslenska dansflokknum, starfsmönnum Hofs og öðrum þeim aðilum sem gerðu þetta mögulegt.