Stjórn Akureyrarstofu - 224
31.01.2017
Hlusta
- Kl. 16:15 - 17:55
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 224
Nefndarmenn
- Unnar Jónssonformaður
- Sigfús Arnar Karlsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Guðmundur Ármann Sigurjónsson
- Eva Dögg Fjölnisdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þórgnýr Dýrfjörðframkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Guðmundur Ármann Sigurjónsson V-lista mætti í forföllum Hildar Friðriksdóttur.[line]
Akureyrarstofa - atvinnumál
Málsnúmer 2017010556Rætt um fyrirkomulag og verkaskipti í atvinnumálum eftir að atvinnumálanefnd hefur hætt störfum.
Matthías Rögnvaldsson fyrrverandi formaður nefndarinnar mætti á fundinn undir þessum lið og fór yfir stöðu helstu verkefna og þau áform sem uppi eru. Bar þar einna hæst Atvinnu- og nýsköpunarhelgin þann 3.- 5. febrúar nk., norðurslóðamál, frumkvöðlasetur sem er í burðarliðnum og áframhald verkefnisins Brothættar byggðir sem er í fullum gangi. Vinnu og umræðum verður haldið áfram á næstu fundum stjórnarinnar.Listasumar og Akureyrarvaka 2017
Málsnúmer 2017010278Áfram haldið umræðu um þróun hátíðanna og mögulegar breytingar á Listasumri. Greint frá umræðum og skoðanaskiptum sem fram fóru á opnum fundi um málið í Ketilhúsinu þann 30. janúar sl.
Vinnu haldið áfram á næsta fundi stjórnarinnar.