Bæjarráð - 3446
- Kl. 09:00 - 11:11
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3446
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Logi Már Einarsson
- Matthías Rögnvaldsson
- Gunnar Gíslason
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Margrét Kristín Helgadóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Elín Dögg Guðjónsdóttirfundarritari
Atvinnumálanefnd
Málsnúmer 2015010158Lögð voru fram drög að samþykkt fyrir atvinnumálanefnd.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að samþykkt um atvinnumálanefnd og felur bæjarstjóra að vinna að nauðsynlegum breytingum sem gera verður samhliða á samþykktum annarra nefnda og stjórnkerfi bæjarins.
Eyþing - sóknaráætlun og Strætó
Málsnúmer 2015010238Formaður Eyþings, Logi Már Einarsson, fór yfir stöðu verkefna á vegum Eyþings.
Verkfallslisti - auglýsing 2015
Málsnúmer 2015010145Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri mætti á fund bæjarráðs og lagði fram tillögu að breytingu á lista yfir starfsmenn sveitarfélagsins sem ekki hafa verkfallsheimild skv. lögum um opinbera starfsmenn.
Bæjarráð samþykkir breytinguna.
Stjórnendaálag
Málsnúmer 20150102352. liður í fundargerð kjarasamninganefndar dagsett 26. janúar 2015:
Umræða um reglur Akureyrarbæjar og fyrirkomulag greiðslu stjórnendaálags skv. grein 1.5.3 í kjarasamningum aðildarfélaga BHM og fleiri félaga.
Kjarasamninganefnd samþykkti að leggja til við bæjarráð að gerð verði breyting á áður samþykktu fyrirkomulagi.
Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri sat fundinn undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir tillögu kjarasamninganefndar.
Frumvarp til laga um örnefni (heildarlög), 403. mál
Málsnúmer 2015010222Lagt fram til kynningar erindi dags. 22. janúar 2015 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um örnefni (heildarlög), 403. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 30. janúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/144/s/0586.html