Bæjarráð - 3489
- Kl. 08:30 - 12:27
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3489
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Matthías Rögnvaldsson
- Sigríður Huld Jónsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Margrét Kristín Helgadóttir
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs
Málsnúmer 2015040029Tekið fyrir að nýju. 1. liður í fundargerð umhverfisnefndar dagsett 24. nóvember 2015:
Tekið fyrir erindi dagsett 23. september 2015 frá verkefnisstjórn um svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi 2015-2026, þar sem óskað er eftir samþykki sveitarstjórnar á áætluninni.
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við áætlunina í heild sinni. Nefndin hvetur hinsvegar til þess að ákvarðanir verði teknar sem varða landið í heild s.s. staðsetningu brennslustöðva fyrir sóttnæman úrgang.
Umhverfisnefnd vísar samþykktinni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð frestaði afgreiðslu á fundi sínum 10. desember sl.
Ólöf Harpa Jósefsdóttir forstöðumaður Flokkunar Eyjafjarðar ehf mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð vísar Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi 2015-2026 til bæjarstjórnar.
Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2015
Málsnúmer 2015040016Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs frá janúar til nóvember 2015.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Aðgerðarhópur um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2015120146Lagt fram erindisbréf fyrir aðgerðarhóp um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir framlagt erindisbréf.
Hrísey - Sæborg
Málsnúmer 2015120041Tekið fyrir að nýju. Erindi dagsett 3. desember 2015 frá Ingimari Ragnarssyni f.h. Leikklúbbsins Kröflu varðandi Sæborg í Hrísey.
Bæjarráð frestaði afgreiðslu á fundi sínum 10. desember sl.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur fjármálastjóra að ganga til samninga við bréfritara.
Menntaskólinn á Tröllaskaga
Málsnúmer 2007100109Bréf dagsett 18. desember 2015 frá Gunnari Inga Birgissyni bæjarstjóra Fjallabyggðar þar sem fram kemur svar Fjallabyggðar við sáttatillögu Akureyrarkaupstaðar vegna Menntaskólans á Tröllaskaga.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri og Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfritara í samræmi við umræður á fundinum.
Nefndalaun - breytingar á reglum
Málsnúmer 2015110142Lögð fram drög að breytingum á reglum um nefndalaun.
Bæjarráð samþykkir tillögu um breytingar á reglum um nefndalaun.
Frumkvöðlasetur á Akureyri
Málsnúmer 20151102322. liður í fundargerð atvinnumálanefndar dagsett 16. desember 2015:
Lagt fram minnisblað dagsett 9. desember 2015 vegna mögulegs samstarfssamnings við Nýsköpunarmiðstöð Íslands um rekstur frumkvöðlaseturs á Akureyri og kostnað vegna breytinga á húsnæði.
Atvinnumálanefnd leggur til að farið verði í formlegar viðræður við Nýsköpunarmiðstöð Íslands um rekstur frumkvöðlaseturs á Akureyri og vísar málinu til bæjarráðs.Bæjarráð felur bæjarstjóra og verkefnisstjóra atvinnumála að hefja formlegar viðræður við Nýsköpunarmiðstöð Íslands um rekstur frumkvöðlaseturs á Akureyri.
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir
Málsnúmer 2015010106Lagðar fram til kynningar fundargerðir 833. og 834. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsettar 30. nóvember og 11. desember 2015. Fundargerðirnar má finna á vefslóðinni: http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/searchmeetings.aspx
Hverfisráð Hríseyjar - fundargerð
Málsnúmer 2010020035Lögð fram 96. fundargerð hverfisráðs Hríseyjar dagsett 18. desember 2015. Fundargerðina má finna á netslóðinni: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/hrisey/fundargerdir
Bæjarráð vísar 1. lið til skipulagsdeildar, 3. lið til bæjarstjóra, 5. lið til framkvæmdaráðs, 6. lið til Fasteigna Akureyrarbæjar, 2. og 4. liður eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.
Eyþing - fundargerð
Málsnúmer 2010110064Lögð fram til kynningar fundargerð 275. fundar stjórnar Eyþings dagsett 8. desember 2015.
Fundargerðina má finna á netslóðinni: http://www.eything.is/is/fundargerdirFrumvarp til laga um almennar íbúðir, 435. mál
Málsnúmer 2015120199Lagt fram til kynningar erindi dagsett 21. desember 2015 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um almennar íbúðir (heildarlög), 435. mál 2015.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 14. janúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/145/s/0643.htmlFrumvarp til laga um húsaleigulög, 399. mál
Málsnúmer 2015120200Lagt fram til kynningar erindi dagsett 21. desember 2015 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um húsaleigulög (réttarstaða leigjenda og leigusala), 399. mál 2015.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 14. janúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/145/s/0545.html