Íþróttaráð - 161
- Kl. 14:00 -
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 161
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Árni Óðinsson
- Birna Baldursdóttir
- Þórunn Sif Harðardóttir
- Ellert Örn Erlingssonfundarritari
Niðurgreiðsla æfinga- og þátttökugjalda, frístundastyrkur, tómstundaávísun
Málsnúmer 2006040018Tekið fyrir að nýju erindi dagsett 3. desember 2014 frá Þóreyju Árnadóttur sem frestað var á síðasta fundi íþróttaráðs. Þar er óskað eftir undanþágu samanber 6. gr. úthlutunarreglna íþróttaráðs um frístundastyrki.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu með tilliti til úthlutunarreglna frístundastyrkja.
Unglingalandsmót UMFÍ á Akureyri 2015
Málsnúmer 2013010129Lögð fram drög að samningi milli Unglingalandsmótsnefndar 2015 f.h. mótshaldara annarsvegar og Akureyrarbæjar hinsvegar um framkvæmd 18. Unglingalandsmóts UMFÍ á Akureyri um verslunarmannahelgina 2015.
Íþróttaráð samþykkir fyrirlögð samningsdrög og felur forstöðumanni íþróttamála að vinna málið áfram.
Niðurgreiðsla æfinga- og þátttökugjalda, frístundastyrkur, tómstundaávísun
Málsnúmer 2006040018Farið yfir úthlutunarreglur fyrir frístundastyrki til barna og unglinga í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi á Akureyri.
Íþróttaráð samþykkir breytingar á úthlutunarreglum fyrir árið 2015.\nÍþróttaráð samþykkir að hækka frístundastyrk í kr. 12.000 frá og með 1. janúar 2015. \nÍþróttaráð samþykkir að hækka aldursviðmið barna vegna frístundastyrks í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi um fjögur ár. Frístundarstyrkurinn mun gilda fyrir börn á aldrinum 6-17 ára frá og með næstu áramótum.