Stjórn Akureyrarstofu - 150
- Kl. 16:00 - 18:00
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 150
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Hlín Bolladóttir
- Sigmundur Ófeigsson
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Matthías Rögnvaldssonáheyrnarfulltrúi
- Sigfús Arnar Karlssonáheyrnarfulltrúi
- Unnsteinn Jónssonáheyrnarfulltrúi
- Þórgnýr Dýrfjörðfundarritari
Verkefnisstjórn um mótun atvinnustefnu
Málsnúmer 2011110167Hreinn Þór Hauksson verkefnisstjóri atvinnumála á Akureyrarstofu mætti á fundinn og fór yfir greiningu gagna frá Ríkisskattstjóra sem hann hefur unnið að. Greiningin gefur gleggri mynd af rekstri og umfangi mismunandi greina í atvinnulífinu á Akureyri en völ hefur verið á hingað til.
<DIV>Stjórn Akureyrarstofu þakkar Hreini fyrir afar greinargóðar upplýsingar og gagnlegar umræður.</DIV>
Leikfélag Akureyrar - samningur 2012-2015
Málsnúmer 2013010067Eiríkur Haukur Hauksson framkvæmdastjóri LA og Soffía Gísladóttir formaður stjórnar LA komu á fundinn og fóru yfir yfirstandandi starfsár félagsins.
<DIV>Stjórn Akureyrarstofu þakkar Eiríki og Soffíu fyrir komuna á fundinn.</DIV>
Fjárhagsáætlun 2014 - Akureyrarstofa
Málsnúmer 2013080216Farið yfir gjaldskrár í tengslum við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2014.
<DIV>Stjórn Akureyrarstofu samþykkir þær tillögur um gjaldskrárbreytingar sem lagðar voru fram á fundinum.</DIV>