Bæjarráð - 3555
- Kl. 08:15 - 12:05
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3555
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Matthías Rögnvaldsson
- Sigríður Huld Jónsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Preben Jón Pétursson
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Dagný Magnea Harðardóttirfundarritari
Hlíðarfjall - úthýsing
Málsnúmer 2014050114Sigmundur Ófeigsson framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar kynnti stöðu málsins.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið ásamt bæjarfulltrúunum Ingibjörgu Ólöfu Isaksen og Baldvini Valdemarssyni.Bæjarráð þakkar Sigmundi fyrir kynninguna og felur Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar að vinna áfram að málinu.
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2018-2021 - fjárhagsrammi
Málsnúmer 2017040095Lögð fram tillaga að fjárhagsramma vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að fjárhagsramma vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.
Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2017
Málsnúmer 2017040070Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs janúar til mars 2017.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.airbnb
Málsnúmer 2017040165Umræður um airbnb og reglur um heimagistingu.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að afla nánari gagna um framkvæmd eftirfylgni með heimagistingu hjá sveitarfélögum.
Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar - ársfundur 2017
Málsnúmer 2017050007Erindi dagsett 26. apríl 2017 frá Valgeiri Magnússyni framkvæmdastjóra f.h. stjórnar SÍMEY þar sem boðað er til ársfundar mánudaginn 15. maí nk. kl. 14:00 í húsnæði miðstöðvarinnar að Þórsstíg 4 á Akureyri.
Bæjarráð felur Höllu Margréti Tryggvadóttur að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.
Bæjarráð tilnefnir Höllu Margréti Tryggvadóttur sem aðalmann í stjórn SÍMEY og Hlyn Má Erlingsson til vara.Fylgiskjöl
Hafnasamlag Norðurlands - aðalfundur 2017
Málsnúmer 2017050059Aðalfundur Hafnasamlags Norðurlands verður haldinn í hafnarhúsinu við Fiskitanga miðvikudaginn 17. maí nk. kl. 15:00.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.
Fylgiskjöl
Viðtalstímar bæjarfulltrúa fundargerð
Málsnúmer 2016100117Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 4. maí 2017.
Bæjarráð vísar 1. og 2. lið til skipulagssviðs, 3. lið til umhverfis og mannvirkjasviðs og 4. lið til bæjarstjóra.
Frumvarp til laga um kosningar til sveitarstjórna (kosningaaldur), 190. mál
Málsnúmer 2017050031Lagt fram til kynningar erindi dagsett 5. maí 2017 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um kosningar til sveitarstjórna (kosningaaldur), 190. mál 2017.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 19. maí nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0261.htmlBæjarráð vísar frumvarpinu til umfjöllunar og umsagnar ungmennaráðs.
Frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (innleiðing samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, stjórnsýsla og húsnæðismál), 439. mál
Málsnúmer 2017050019Lagt fram til kynningar erindi dagsett 3. maí 2017 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (innleiðing samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, stjórnsýsla og húsnæðismál), 439. mál 2017.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 12. maí nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0572.htmlFrumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir, 438. mál
Málsnúmer 2017050018Lagt fram til kynningar erindi dagsett 3. maí 2017 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir, 438. mál 2017.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 12. maí nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0571.html