Umhverfis- og mannvirkjaráð - 89
13.11.2020
Hlusta
- Kl. 08:15 - 11:00
- Fjarfundur
- Fundur nr. 89
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Sigurjón Jóhannesson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Jónas Valdimarssonverkefnastjóri hönnunar
- Steindór Ívar Ívarssonforstöðumaður viðhaldsdeildar
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður nýframkvæmda
- Hildigunnur Rut Jónsdóttirforstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Tryggvi Már Ingvarsson B-lista mætti í forföllum Gunnfríðar Elínar Hreiðarsdóttur.
Brú - Eyjafjarðará vesturkvísl
Málsnúmer 2019110327Skilamat dagsett 13. október 2020 varðandi byggingu á brú yfir vesturkvísl Eyjafjarðarár.
Gilsbakkavegur bílastæði - fyrirspurn um viðbyggingu og stækkun lóðar
Málsnúmer 2018120051Lögð fram drög dagsett 10. nóvember 2020 varðandi hliðrun/færslu á efsta hluta Gilsbakkavegar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir drög að kostnaðarskiptingu á framkvæmdinni.
Eignfærsluverk í umhverfismálum
Málsnúmer 2019060039Staða eignfærsluverkefna í umhverfismálum á árinu 2020 kynnt fyrir ráðinu.
Snjómokstur 2020-2021
Málsnúmer 2020100385Lagðar fram tillögur varðandi smávægilegar breytingar á forgangi og fjölgun snjólosunarsvæða.
Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis - og mannvirkjaráð samþykkir framlagðar tillögur.
Umhverfis- og loftslagsstefna Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2020110192Lögð fram drög að umhverfis- og loftslagsstefnu Akureyrarbæjar.
Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2021
Málsnúmer 2020080605Teknar fyrir starfsáætlannir í viðhaldi gatna og stíga ásamt Fasteignum Akureyrarbæjar.