Stjórn Akureyrarstofu - 325
- Kl. 12:00 - 14:40
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 325
Nefndarmenn
- Hilda Jana Gísladóttirformaður
- Anna Fanney Stefánsdóttir
- Sigfús Arnar Karlsson
- Berglind Ósk Guðmundsdóttir
- Finnur Sigurðsson
- Karl Liljendal Hólmgeirssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
- Þórgnýr Dýrfjörðforstöðumaður Akureyrarstofu
- Sumarliði Guðmar Helgason
Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2022
Málsnúmer 2021060306Starfsáætlun stjórnar Akureyrarstofu lögð fram til samþykktar.
Stjórn Akureyrarstofu vísar gjaldskrártillögum til bæjarráðs.
Samningur við MAk 2021 - 2023
Málsnúmer 2021051151Samningur við MAk lagður fram til samþykktar.
Þuríður Helga Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri MAk sat fundinn undir þessum lið.Stjórn Akureyrarstofu samþykkir samninginn með þeim breytingum sem voru ræddar á fundinum og vísar honum til bæjarráðs og bæjarstjórnar til endanlegrar afgreiðslu.
Akureyri - menningarhöfuðborg Evrópu
Málsnúmer 2021060508Á fundi stjórnar Akureyrarstofu þann 9. júní sl. var kynnt hugmyndin um Akureyri sem menningarhöfuðborg Evrópu og var starfsfólki falið að kanna fýsileika þess að hefja undirbúning að því.
Lagt fram minnisblað forstöðumanns Akureyrarstofu.
Þuríður Helga Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri MAk sat fundinn undir þessum lið.Stjórn Akureyrarstofu telur ekki tímabært að fara af stað með þetta verkefni.
Sumarliði Guðmar Helgason vék af fundi kl. 14:00.
Samkeppnishæfni Akureyrarbæjar gagnvart öðrum sveitarfélögum á atvinnumarkaði
Málsnúmer 2018110163Lögð fram drög að samkeppnisgreiningu sem unnin hefur verið í samvinnu við SSNE.
Jón Þór Kristjánsson verkefnastjóri upplýsingamiðlunar sat fundinn undir þessum lið.Stjórn Akureyrarstofu lýsir yfir ánægju með framkomin drög og felur starfsmönnum að vinna þau áfram. Málið verður tekið fyrir aftur á næsta fundi.
Menningarstefna Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2021080724Fyrir liggur að endurnýja menningarstefnu Akureyrarbæjar. Umræða um fyrirkomulag vinnunar við gerð nýrrar stefnu.
Stjórn Akureyrarstofu - rekstraryfirlit 2021
Málsnúmer 2021050090Átta mánaða rekstraryfirlit lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Samfélagssvið - starfsmannamál
Málsnúmer 2018110172Lögð fram til kynningar samantekt á yfirvinnu í hlutfalli við dagvinnu á kostnaðarstöðvum sem heyra undir stjórn Akureyrarstofu.
Minjasafnið á Akureyri - fundargerðir stjórnar
Málsnúmer 2019030227Fundargerðir stjórnar Minjasafnsins á Akureyri nr. 20, 21 og 22 lagðar fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE - fundargerðir stjórnar 2021
Málsnúmer 2021011468Fundargerðir stjórnar SSNE nr. 23 - 29 lagðar fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Markaðsstofa Norðurlands - fundargerðir
Málsnúmer 2020040527Fundargerð stjórnar MN frá 28. september 2021 lögð fram til kynningar.
Fylgiskjöl