Umhverfis- og mannvirkjaráð - 60
- Kl. 09:15 - 10.50
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 60
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónssonvaraformaður
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirforstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
- Steindór Ívar Ívarssonforstöðumaður viðhaldsdeildar
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður nýframkvæmda
Síðubraut og Golfskáli - stígagerð
Málsnúmer 2019080270Lagðar fram niðurstöður útboðs á gerð tveggja stíga, við Síðubraut annars vegar og frá Kjarnagötu að Golfskálanum. Tvö tilboð bárust í verkin:
Finnur ehf. kr. 13.444.000, 97% af kostnaðaráætlun.
Nesbræður ehf. kr. 17.453.500, 126% af kostnaðaráætlun.
Kostnaðaráætlun kr. 13.900.000Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga að tilboði lægstbjóðanda, Finns ehf.
Fylgiskjöl
Lögmannshlíð - gangstígalýsing að austanverðu
Málsnúmer 2019080271Lagðar fram niðurstöður útboðs á verkinu. Tvö tilboð bárust í verkið:
Finnur ehf kr. 3.691.716, 123% af kostnaðaráætlun.
Nesbræður ehf. kr. 5.001.100, 167% af kostnaðaráætlun.
Kostnaðaráætlun kr. 3.000.000Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga að tilboði lægstbjóðanda, Finns ehf.
Fylgiskjöl
Óshólmanefnd 2018 - 2022
Málsnúmer 2018090267Tilnefning fulltrúa til setu í Óshólmanefndinni í stað Dagbjartar Elínar Pálsdóttur S-lista.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að tilnefna Gunnfríði Elínu Hreiðarsdóttur B-lista fulltrúa ráðsins í Óshólmanefndina.
Árholt - endurbætur og breytingar
Málsnúmer 2019080197Lögð fram stöðuskýrsla 1 dagsett 15. ágúst 2019.
Slökkvilið - tækjakaup 2019
Málsnúmer 2019020063Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri mætti á fundinn og kynnti stöðuna á kaupum slökkviliðsbíls vegna Vaðlaheiðarganga.
Glerárskóli - endurbætur B álma
Málsnúmer 2019020224Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda mætti á fundinn og fór yfir stöðuskýrslu 1 dagsetta 15. ágúst 2019.
Íþróttahús Glerárskóla - endurbætur og gólf
Málsnúmer 2019010306Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda mætti á fundinn og fór yfir stöðuskýrslu 1 dagsetta 15. ágúst 2019.
Íþróttahús Lundarskóla - viðhald á búningsklefum
Málsnúmer 2019010361Lögð fram stöðuskýrsla 1 dagsett 15. ágúst 2019.
Samantekt ástands húsnæðis Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2019030349Kynning á niðurstöðum ástandsskoðana í Brekkuskóla og Oddeyrarskóla.