Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 942
- Kl. 13:00 - 13:50
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 942
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
Dalsbraut 1H - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023110892Erindi dagsett 21. nóvember 2023 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Hika ekki ehf. sækir um byggingarheimild fyrir breytingum á innra skipulagi húss nr. 1H við Dalsbraut. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Jaðar - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023110697Erindi dagsett 17. nóvember 2023 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Golfklúbbs Akureyrar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir æfingarhúsi að Jaðri.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Freyjunes 4 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023110617Erindi dagsett 16. nóvember 2023 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd Sjafnar ehf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir viðbyggingu við hús nr. 4 við Freyjunes, Akureyri.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Óseyri 1 - umsókn um byggingarleyfi (niðurrif)
Málsnúmer 2023110935Erindi dagsett 22. nóvember 2023 þar sem Módelhús ehf. sækir um niðurrif á húsi nr. 1 við Óseyri.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.