Velferðarráð - 1320
- Kl. 14:00 - 16:59
- Fjarfundur
- Fundur nr. 1320
Nefndarmenn
- Heimir Haraldssonformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Hermann Ingi Arason
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Helga Guðrún Erlingsdóttirframkvæmdastjóri ÖA
- Karólína Gunnarsdóttirsviðsstjóri búsetusviðs
- Kristbjörg Björnsdóttirfundarritari
Barnavernd - 2020
Málsnúmer 2020030698Vilborg Þórarinsdóttir forstöðumaður barnaverndar kynnti einstaklingsmál.
Málefni einstaklinga eru færð í trúnaðarbók velferðarráðs.
Fjárhagsaðstoð 2020
Málsnúmer 2020040596Lögð fram til kynningar fjárhagsaðstoð janúar - mars 2020.
Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sat fundinn undir þessum lið.Þjónusta fyrir fatlað fólk: Hæfing - iðja - virkni
Málsnúmer 2020040567Minnisblað frá Guðrúnu Sigurðardóttur sviðsstjóra fjölskyldusviðs og Karólínu Gunnarsdóttur sviðsstjóra búsetusviðs dagsett 28. apríl 2020 lagt fram til kynningar.
Svanborg Bobba Guðgeirsdóttir forstöðumaður Plastiðjunnar Bjargs-Iðjulundar sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð felur sviðsstjórum að vinna málið áfram og vísar málinu til samstarfshóps um málefni fatlaðra.
Velferðarráð - rekstraryfirlit 2020
Málsnúmer 2020040595Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit janúar - mars 2020.
Lúðvík Freyr Sæmundsson rekstrarstjóri ÖA sat fundinn undir þessum lið.Viðbragðsáætlanir Akureyrarbæjar vegna COVID-19
Málsnúmer 2020030378Covid-19 - stöðumat sviða velferðarráðs. Hvernig hefur gengið? Staðan í dag og framtíðin.
Vilborg Þórarinsdóttir forstöðumaður barnaverndar og Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.Velferðarráð þakkar starfsfólki Öldrunarheimila Akureyrar og búsetu- og fjölskyldusviðs fyrir óeigingjarnt starf á tímum Covid-19. Starfsfólk hefur aðlagað líf sitt að því starfi sem það sinnir og sett hagsmuni skjólstæðinga sinna framar sínum eigin.
Stefna og áherslur í málefnum einstaklinga með heilabilun/Alzheimer
Málsnúmer 2017080028Helga Guðrún Erlingsdóttir framkvæmdastjóri ÖA kynnti aðgerðaáætlun heilbrigðisráðuneytisins um þjónustu við einstaklinga með heilabilun.
Fylgiskjöl
Endurskoðun menntastefnu 2018
Málsnúmer 2017080125Drög að menntastefnu Akureyrarbæjar lögð fram til umsagnar.
Velferðarráð telur mikilvægt að unnin verði aðgerðaáætlun og að gerð verði kostnaðargreining.
Starfsendurhæfing Norðurlands - skipan fulltrúa í stjórn
Málsnúmer 2020040599Lagt fram erindi frá Jakobínu Elvu Káradóttur forstöðumanni Starfsendurhæfingar Norðurlands þar sem hún óskar eftir tilnefningum í stjórn Starfsendurhæfingarinnar.
Velferðarráð tilnefnir Guðrúnu Sigurðardóttur sem aðalmann í
stjórn Starfsendurhæfingar Norðurlands og Önnu Marit Níelsdóttur sem varamann.Ungfrú Ragnheiður - beiðni um samstarfssamning
Málsnúmer 2020040486Lögð fram beiðni um samstarfssamning vegna verkefnisins Ungfrú Ragnheiður frá Ingibjörgu Halldórsdóttur deildarstjóra Eyjafjarðardeildar Rauða krossins dags. 19. júlí 2019.
Velferðarráð getur ekki orðið við erindinu.