Fræðsluráð - 32
- Kl. 13:30 - 16:00
- Síðuskóli
- Fundur nr. 32
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Þorlákur Axel Jónsson
- Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
- Rósa Njálsdóttir
- Þórhallur Harðarson
- Þuríður Sólveig Árnadóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Frímannssonsviðsstjóri fræðslusviðs
- Erna Rós Ingvarsdóttirfundarritari
- Anna Lilja Sævarsdóttirfulltrúi leikskólastjóra
- Atli Þór Ragnarssonfulltrúi foreldra leikskólabarna
- Bryndís Valgarðsdóttirfulltrúi skólastjóra
- Hafdís Ólafsdóttirfulltrúi leikskólakennara
- Hildur Lilja Jónsdóttirfulltrúi ungmennaráðs
- Jóhann Gunnarssonfulltrúi foreldra grunnskólabarna
- Ragnheiður Ásta Einarsdóttirfulltrúi grunnskólakennara
Reglur um leikskólaþjónustu
Málsnúmer 2018020315Endurskoðaðar reglur um leikskólaþjónustu lagðar fram til afgreiðslu.
Meirihluti fræðsluráðs staðfestir endurskoðaðar reglur um leikskólaþjónustu og vísar þeim til bæjarstjórnar.
Þórhallur Harðarson D-lista greiddi atkvæði á móti.Stjórnkerfisbreytingar í velferðarþjónustu
Málsnúmer 2020050662Staðan á vinnu við endurskoðun á þjónustu við barnafjölskyldur lögð fram til kynningar.
Lundarskóli - Rósenborg
Málsnúmer 2020060185Minnisblað um flutning skólastarfs 7.-10. bekkjar Lundarskóla í Rósenborg lagt fram til kynningar.
Meirihluti fræðsluráðs staðfestir ósk um flutning skólastarfs 7. - 10. bekkjar Lundarskóla í Rósenborg á meðan unnið er að endurbótum í Lundarskóla.
Þórhallur Harðarson D-lista sat hjá.Lundarskóli - loftgæði - LUSK
Málsnúmer 2020020505Lagt var fram minnisblað frá UMSA og skýrsla frá Mannviti um fyrirhugaðar aðgerðir í Lundarskóla vegna endurbóta.
Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs sat fund fræðsluráðs undir þessum lið.Meirihluti fræðsluráðs óskar eftir að farið verði í gagngerar endurbætur við Lundarskóla auk stækkunar á matsal og frágangi á lóð. Auk þess leggur fræðsluráð áherslu á að hugað verði að hönnun og byggingu leikskóla við Lundarskóla í framtíðinni. Í ljósi fyrirliggjandi gagna taka endurbætur stystan tíma og raska þar með skólastarfi minnst auk þess sem þær munu fullnægja þörfum nútíma skólastarfs. Endurbætur á skólanum eru hagkvæmasti kosturinn bæði út frá fjármagni og faglegum forsendum skólastarfs. Fræðsluráð vísar erindinu til bæjarráðs.
Rósa Njálsdóttir M-lista sat hjá.
Þórhallur Harðarson D-lista greiddi atkvæði á móti.Starfsáætlun fræðslusviðs 2021
Málsnúmer 2020050172Fyrstu drög að starfsáætlun fræðslusviðs fyrir árið 2021 lögð fram til kynningar.
Rekstur fræðslumála 2020
Málsnúmer 2020010575Rekstrarstaða fræðslumála fyrir tímabilið janúar til maí 2020 lögð fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Breytingar á útreikningi húsaleigu íþróttamannvirkja
Málsnúmer 2020060261Minnisblað um breytingar á útreikningi húsaleigu íþróttamannvirkja lagt fram til kynningar.
Kristín Baldvinsdóttir, verkefnastjóri á fjársýslusviði, sat fund fræðsluráðs undir þessum lið.Skólaheimsóknir fræðsluráðs 2019-2022
Málsnúmer 2019110081Skólastjóri Síðuskóla, Ólöf Inga Andrésdóttir, kynnti starf skólans.