Umhverfis- og mannvirkjaráð - 112
- Kl. 08:15 - 11:15
- Fjarfundur
- Fundur nr. 112
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónsson
- Sunna Hlín Jóhannesdóttir
- Þórhallur Harðarson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundaáætlun umhverfis- og mannvirkjaráðs 2022
Málsnúmer 2021120728Lagt fram fundaplan fyrir árið 2022.
Sparkvellir við grunnskóla - endurnýjun á gervigrasi 2022
Málsnúmer 2021120731Lagt fram minnisblað dagsett 19. janúar 2022 varðandi opnun tilboða í framkvæmdir við sparkvelli við Glerárskóla, Síðuskóla og Naustaskóla. Sex tilboð bárust frá þremur aðilum.
Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda Altis ehf. um kaup og skipti á gervigrasinu.
Félagssvæði KA - gervigrasvellir
Málsnúmer 2021120734Lagt fram minnisblað dagsett 19. janúar 2022 varðandi opnun tilboða í gervigrasvelli við KA.
Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu málsins.
Leikskólinn Klappir við Glerárskóla
Málsnúmer 2018050021Lagt fram minnisblað dagsett 19. janúar 2022 varðandi uppgjör framkvæmda við leikskólann Klappir.
Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að óska eftir viðauka til bæjarráðs þess efnis að færa kr. 40 milljónir frá áætlun ársins 2021 til 2022 vegna seinkunar verkloka og uppgjörs verksins.
Glerárskóli - endurbætur á anddyri, A og C álmu
Málsnúmer 2020090038Kynning á hönnun fyrirhugaðra framkvæmda við A og C álmu Glerárskóla.
Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar kynninguna og tekur vel í fyrirhugaðar framkvæmdir.
Tryggvabraut - hringtorg við Hvannavelli
Málsnúmer 2021120740Lagt fram minnisblað dagsett 20. janúar 2022 varðandi opnun tilboða í framkvæmdir við Tryggvabraut, Hvannavelli og hringtorg á gatnamótunum. Eitt tilboð barst.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri tækni og hönnunar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við Finn ehf., en tilboðið hljóðaði upp á kr. 175.922.000.
Samkomulag við Meindýravarnir Eyjafjarðar
Málsnúmer 2021040669Lagt fram minnisblað dagsett 19. janúar 2022 varðandi framlengingu á samningi um meindýravarnir.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að framlengja samning við Meindýravarnir Eyjafjarðar um meindýravarnir til tveggja ára.
Snjómokstur 2020-2022
Málsnúmer 2020100385Lagt fram minnisblað dagsett 19. janúar 2022 varðandi forgang í snjómokstri.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir breytingar á forgangi frá engum forgangi upp í þriðja forgang í stígamokstri í syðri hluta Búðartraðar frá Þórunnarstræti að SAk og meðfram Sjafnargötu að bæjarmörkum til norðurs í samræmi við umræður á fundinum.
Óshólmanefnd 2018 - 2022
Málsnúmer 2018090267Lagt fram erindi frá óshólmanefnd dagsettt 9. desember 2021 varðandi frágang á svæðinu eftir framkvæmdir og áform um að viðhalda votlendi sunnan flugvallar.
Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda, Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að boða óshólmanefnd á fund ráðsins við fyrsta tækifæri.
Fylgiskjöl
Íþróttafélagið Þór - dúkur á aðalvöll
Málsnúmer 2021111571Lagt fram minnisblað dagsett 20. janúar 2022 varðandi erindi frá Íþróttafélaginu Þór, áframsent og samþykkt af frístundaráði, varðandi kaup á dúk á aðalvöll félagsins sem ætlað er að lengja það tímabil sem völlurinn er nothæfur til knattspyrnuiðkunar.
Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir erindið og það verði fjármagnað af búnaðarsjóði UMSA vegna ársins 2022.