Velferðarráð - 1375
- Kl. 14:00 - 16:20
- Glerárgata 26, kálfur, fundarherbergi
- Fundur nr. 1375
Nefndarmenn
- Lára Halldóra Eiríksdóttirvaraformaður
- Hulda Elma Eysteinsdóttir
- Hólmgeir Karlsson
- Guðbjörg Anna Björnsdóttir
- Snæbjörn Ómar Guðjónsson
- Elsa María Guðmundsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Tinna Guðmundsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri velferðarsviðs
- Karólína Gunnarsdóttirþjónustustjóri velferðarsviðs
- Kristín Birna Kristjánsdóttirfundarritari
Velferðarráð - rekstraryfirlit 2023
Málsnúmer 2023011181Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit velferðarsviðs eftir níu mánuði ársins 2023.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.Fjárhagsaðstoð 2023
Málsnúmer 2023011182Lagt fram til kynnngar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð fyrstu níu mánuði árins 2023.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.Barnaverndarúrræði - vistanir
Málsnúmer 2023101070Lagt fram til kynningar yfirlit yfir kostnað á liðnum Vistun á stofnunum og heimilum.
Vilborg Þórarinsdóttir forstöðumaður og Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sátu fundinn undir þessum lið.Elsa María Guðmundsdóttir S-lista lagði fram eftirfarandi bókun:
Í ljósi þeirrar stöðu sem er uppi varðandi lausnir fyrir börn og fjölskyldur í bráðum vanda, er afar mikilvægt að efla starfsemi, hlutverk og forvarnagildi Miðholts, greiningar og þjálfunarmiðstöðvar. Augljóst er að þörfin fyrir slíkan stað er brýn og um 60 börn hafa þurft á vistun utan heimilis að halda það sem af er ári 2023.Velferðarráð - gjaldskrá fyrir félagslegt húsnæði 2021-2022
Málsnúmer 2021111421Lagt fram minnisblað dagsett 23. október 2023 frá Kristínu Baldvinsdóttur forstöðumanni hagþjónustu og áætlanagerðar um stöðu félagslegra íbúða.
Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður og Guðni Örn Hauksson húsnæðisfulltrúi sátu fundinn undir þessum lið.Tinna Guðmundsdóttir F-lista vék af fundi kl.15:27.
Reglur um félagslegt leiguhúsnæði Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2023090345Lagðar fram að nýju reglur um félagslegt leiguhúsnæði Akureyrarbæjar. Reglunum var vísað til umsagnar samráðshóps um málefni fatlaðs fólks og hann lýsir yfir ánægju sinni með reglurnar. Öldungaráð fékk reglurnar til umsagnar og gerir ekki athugasemdir við þær.
Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarstjórnar.
Samstarfssamningur um þjónustu Grófarinnar á Akureyri
Málsnúmer 2023100644Lögð fram drög að samstarfssamningi um þjónustu Grófarinnar á Akureyri.
Fjölsmiðjan - styrkbeiðni til velferðarráðs
Málsnúmer 2023100852Lögð fram umsókn um styrk frá Erlingi Kristjánssyni f.h. Fjölsmiðjunnar á Akureyri kr. 2.000.000.
Velferðarráð samþykkir styrkbeiðni Fjölsmiðjunnar að upphæð kr. 2.000.000.
Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis - styrkbeiðni til velferðarráðs
Málsnúmer 2023100772Lögð fram beiðni um styrk frá Herdísi Helgadóttur f.h. Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðis kr.1.500.000.
Beiðni frá Herdísi Helgadóttur fyrir hönd Velferðarsjóð Eyjarfjarðarsvæðisins frestað þar sem velferðarráð óskar eftir frekari upplýsingum.
Mæðrastyrksnefnd - styrkbeiðni til velferðarráðs
Málsnúmer 2023100856Lögð fram beiðni um styrk frá Birgit Schov f.h. Mæðrastyrksnefndar kr. 200.000.
Velferðarráð samþykkir styrkbeiðni Mæðrastyrksnefndar að upphæð kr. 200.000.
Grófin - styrkbeiðni til velferðarráðs
Málsnúmer 2023100810Lögð fram styrkbeiðni frá Pálínu Sigrúnu Halldórsdóttur f.h. Grófarinnar kr. 2.000.000.
Velferðarráð samþykkir styrkbeiðni Grófarinnar að upphæð kr. 2.000.000.
Stígamót - styrkbeiðni til velferðarráðs 2022 - 2026
Málsnúmer 2022110138Erindi dagsett 30. ágúst 2023 frá Drífu Snædal f.h. Stígamóta þar sem óskað er eftir fjárstuðningi og samstarfi um rekstur þjónustu við þolendur kynferðisofbeldis.
Velferðarráð getur því miður ekki orðið við beiðni Stígamóta.
Skýrsla stýrihóps um fyrirkomulag þjónustu við börn með fjölþættan vanda
Málsnúmer 2023100235Lögð fram til kynningar skýrsla stýrihóps um fyrirkomulag þjónustu við börn með fjölþættan vanda.