Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 880
08.09.2022
Hlusta
- Kl. 10:30 - 11:00
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 880
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Þórunn Vilmarsdóttirfundarritari
Strandgata 12 - HOF - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022090168Erindi dagsett 5. september 2022 þar sem Sigurður Hallgrímsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á húsi nr. 12 við Strandgötu. Fyrirhugað er að innrétta sal í kjallara hússins til leiklistarkennslu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Sigurð Hallgrímsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Hafnarstræti 100 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022090192Erindi dagsett 5. september 2022 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Byggðavalla ehf. sækir um breytta skráningu húss nr. 100 við Hafnarstræti, landnr. 148061 úr íbúðarhúsnæði í atvinnuhúsnæði.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.