Félagsmálaráð - 1111
- Kl. 14:00 - 17:00
- Hlíð - samkomusalur
- Fundur nr. 1111
Nefndarmenn
- Inda Björk Gunnarsdóttirformaður
- Dagur Fannar Dagsson
- Anna Guðný Guðmundsdóttir
- Sif Sigurðardóttir
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Karólína Gunnarsdóttir
- Kristín Sóley Sigursveinsdóttirfundarritari
Félagsleg liðveisla - áfrýjanir 2010
Málsnúmer 2010090014Sigríður M. Jóhannsdóttir forstöðumaður í heimaþjónustu kynnti áfrýjun vegna afgreiðslu búsetudeildar á umsókn um félagslega liðveislu.\nÁfrýjanir og afgreiðsla þeirra eru færðar í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

Heimaþjónusta - áfrýjanir 2010
Málsnúmer 2010100138Bergdís Ösp Bjarkadóttir forstöðumaður heimaþjónustu kynnti áfrýjun vegna afgreiðslu búsetudeildar á umsókn um félagslega heimaþjónustu. \nÁfrýjanir og afgreiðsla þeirra eru færðar í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

Búseta með þjónustu fyrir fatlaða - starfsemi 2010
Málsnúmer 2010090118Kristín Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar kynnti stöðu í búsetumálum fólks með fötlun og tillögur um úrbætur.

Félagsmálaráð heimilar framkvæmdastjóra búsetudeildar að vinna áfram að málinu.

Yfirfærsla á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga
Málsnúmer 2009110111Karólína Gunnarsdóttir starfandi framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Kristín Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar kynntu stöðuna varðandi yfirfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaga um næstu áramót og myndun þjónustusvæðis með nágrannasveitarfélögum. Lagt fram minnisblað framkvæmdastjóra búsetudeildar, dags. 27. október 2010.

Félagsmálaráð felur framkvæmdastjórum búsetudeildar og fjölskyldudeildar að vinna áfram að málinu í samráði við bæjarstjóra.

Fjárhagsáætlun 2011 - félagsmálaráð
Málsnúmer 2010090173Umræða um niðurskurð í fjárhagsáætlun ÖA 2011 vegna frumvarps til fjárlaga næsta árs. Einnig lögð fram ný drög að áætlunum búsetudeildar, fjölskyldudeildar og ÖA þar sem breytingar urðu á þeim við síðustu launakeyrslu.

Félagsmálaráð samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlunum búsetudeildar, fjölskyldudeildar og ÖA fyrir 2011 og vísar þeim til bæjarráðs.

Eden hugmyndafræðin á ÖA
Málsnúmer 2010100114Hrefna Brynja Gísladóttir iðjuþjálfi kynnti notkun Eden hugmyndafræðinnar á ÖA og Sólskinsklúbbinn sem er starfræktur á Hlíð.

Félagsmálaráð þakkar áhugaverða og góða kynningu.

Gjafasjóður ÖA - 2010
Málsnúmer 2010100113Kynntur arfur frá fyrrum íbúa ÖA sem borist hefur í gjafasjóðinn að upphæð 32 milljónir króna. Sjóðurinn nýtist til ýmissa framfaraverkefna og búnaðarkaupa.

Félagsmálaráð þakkar fyrir þann mikla velvilja sem starfsemi ÖA er sýndur með þessum arfi.

Anna Guðný Guðmundsdóttir vék af fundi kl. 17:15.
Sambýlið Bakkahlíð - 2010
Málsnúmer 2010100112Heimsókn í Bakkahlíð 39 og kynning á heimilinu.

Félagsmálaráð þakkar heimboðið og góðar móttökur.