Stjórn Akureyrarstofu - 91
- Kl. 16:00 - 18:00
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 91
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Sigmundur Ófeigsson
- Jón Hjaltason
- Jóhann Jónsson
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Þórgnýr Dýrfjörðfundarritari
Starfshópur Akureyrarstofu um atvinnumál
Málsnúmer 2010060120Starfshópurinn hefur nú lokið störfum og skilað skýrslu um vinnu sína. \nGeir Kristinn Aðalsteinsson formaður starfshópsins mætti á fundinn og gerði ásamt Sigmundi Ófeigssyni grein fyrir niðurstöðunum. \nMeginatriði í tillögum hópsins eru:\nað nauðsynlegt sé að aðkoma bæjaryfirvalda að atvinnumálum sé þverpólitísk, að atvinnustefna nái yfir meira en eitt kjörtímabil, að málaflokkurinn verði í umsjón stjórnar Akureyrarstofu og verkefnisstjóri atvinnumála staðsettur á Akureyrarstofu. Auka þarf tengsl bæjaryfirvalda við atvinnulífið og efla þarf þekkingu á atvinnulífinu á Akureyri og greina betur samsetningu þess. Hópurinn leggur til að fulltrúum í stjórn Akureyrarstofu verði fjölgað þannig að allir flokkar eigi þar fulltrúa. Viðbótarfulltrúarnir verði áheyrnarfulltrúar með málfrelsi og tillögurétt.
<DIV>Stjórn Akureyrarstofu þakkar starfshópnum fyrir vel unnin störf og greinargóða skýrslu. Stjórnin mun taka tillögur hópsins til umfjöllunar og frekari úrvinnslu.</DIV>
Formaður vék af fundi kl. 17:15 og varaformaður tók við stjórn.
Starfsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2011-2014
Málsnúmer 2011010071Kynnt var staða í vinnu við starfsáætlun og farið yfir efnisatriði hennar. Jafnframt var kynnt nýtt form frá því sem áður var.
<DIV>Stjórn Akureyrarstofu samþykkir þau efnisatriði sem fram koma í starfsáætluninni og felur formanni og framkvæmdastjóra að ljúka við frágang hennar.</DIV>