Framkvæmdaráð - 306
- Kl. 09:00 - 11:50
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 306
Nefndarmenn
- Dagur Fannar Dagssonformaður
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður gatna, fráveitu- og hreinlætismála
- Jón Birgir Gunnlaugssonforstöðumaður umhverfismála ritaði fundargerð
Kortlagning hávaða - aðgerðaráætlun
Málsnúmer 2010010129Lögð fram aðgerðaráætlun gegn hávaða á Akureyri 2015-2020.
Framkvæmdaráð samþykkir fyrir sitt leyti aðgerðaráætlunina og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Umhverfisátak
Málsnúmer 2012080082Kynntar hugmyndir frá hverfisnefndum fyrir árið 2015.
Framkvæmdaráð felur forstöðumanni umhverfismála áframhaldandi vinnu. Framkvæmdaráð óskar eftir að fulltrúi frá hverfisnefndum/-ráðum mæti á næsta fund nefndarinnar sem haldinn verður 8. maí nk.
Útboð framkvæmdadeildar árið 2015
Málsnúmer 2015020018Gerð grein fyrir stöðu mála hvað varðar útboð, Smáverk - útboð árið 2015.
Framkvæmdaráð felur starfsmönnum áframhaldandi vinnu ásamt bæjarlögmanni.
Önnur mál í framkvæmdaráði 2015
Málsnúmer 2015010067Ingibjörg Isaksen B-lista spurðist fyrir um skógrækt norðan Glerár, rusl á gámasvæði ásamt rusladöllum í göngugötu.
Njáll Trausti Friðbertsson D-lista spurðist fyrir um hvort áhugamannafélög gætu tekið þátt í skógrækt norðan Glerár. Einnig spurðist hann fyrir um hvort Akureyrarbær væri með hitamæla í malbikuðum götum. Vill fá að vita fyrir næsta fund hversu margir hundar og kettir eru skráðir í bænum og hver þróunin hefur verið á undanförnum árum.